veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla og góða ræðu sem kemur einmitt inn á það hve fjölbreytt þetta mál er og hve áhrifin geta verið fjölbreytt. Ég held að það sé einmitt mjög mikilvægt, sem hv. þingmaður kemur inn á, að við höfum sem mestar upplýsingar til að átta okkur á því hvaða áhrif þetta hefur til að við séum ekki að skapa einhver óvænt og óæskileg áhrif sem við viljum ekki ná fram. Ég tek líka undir það með hv. þingmanni að það eru miklar deilur um þetta og ég held að upplýsingar, að vita eitthvað um málin, geti dregið úr þeim deilum og nálgast sáttina. En hv. þingmaður kom inn á útflutningsverðmæti, mikilvægi sjávarútvegsins sem útflutningsgreinar. Telur hv. þingmaður það ekki vera enn mikilvægara eins og efnahagsástandið er, hvernig staðan er í heimsmálunum og annað, að við stöndum vörð um eina mikilvægustu útflutningsatvinnugrein okkar?