156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:13]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir hans spurningu. Vissulega er það þannig að þegar meiri óvissa er á alþjóðamörkuðum er meiri áhætta og þá skiptir máli að tryggja okkar viðskiptasambönd, sama hvort það er í sjávarútvegi eða í öðrum greinum, eins og ferðaþjónustu; að það sé haldið vel utan um það og að við pössum upp á að skapa ekki of mikinn óstöðugleika. Það er kannski það sem ég kom inn á varðandi það að verið sé að hækka gjöldin skarpt, hvort nær hefði verið að horfa á þetta í þrepum yfir lengri tíma.