156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:14]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Nú sjáum við að verðbólgan var að hækka í síðustu mælingu og það eru blikur á lofti. Það er farið að koma í ljós að viðskiptajöfnuður á Íslandi er að dragast saman. Þá er einmitt allur útflutningur, hvort sem er í sjávarútvegi, í ferðaþjónustu eða í nýsköpun — nýsköpunin er helst tengd sjávarútvegi, öll nýsköpun, yfir helmingurinn af einkaleyfum er í sjávarútvegi. Því hlýtur aukinn útflutningur að vera okkar helsta vopn í þessari stöðu í heimsmálunum og í efnahagsmálunum. Þá er það annars vegar sjávarútvegurinn sjálfur og svo nýsköpunin sem er nátengd. Mér heyrist á hv. þingmanni að það sé gríðarlega mikilvægt að við tryggjum aukinn útflutning og í þessu máli hljótum við að þurfa að vinna að því að við stöndum ekki bara vörð um útflutninginn heldur gerum allt til þess að auka hann.