veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Auðvitað eru útflutningsgreinar okkar í sjávarútvegi og aukin verðmætasköpun eitthvað sem við eigum að fóstra vel og halda upp á. Og sjávarútvegurinn hefur staðið sig sérstaklega vel í því að fjárfesta í nýsköpun og aukinni verðmætasköpun eins og Genis og Kerecis og önnur fyrirtæki eru dæmi um. Ég held að við séum í orðræðunni hér oft að takast á við það að eftir að framsal var heimilað, sumir erfðu kvóta eða fengu kvóta, gátu selt sig út úr greininni, er ákveðin ósanngirni til staðar. Það er kannski horft á veiðigjöldin í þeirri orðræðu til að ná sátt. Stundum er þessu tvennu kannski ruglað saman að ákveðnu leyti. En það hlýtur að vera markmið okkar að hafa sanngjörn veiðigjöld til langs tíma, sem geta jafnframt verið með þeim hætti að greinin getur fjárfest.