veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína spurningu. Auðvitað get ég ekki svarað fyrir hönd ríkisstjórnarinnar en ég get sagt að það hefði verið eðlilegra að vinna greiningarnar, taka fyrsta þing í það og leggja kannski fram frumvarp í haust til að ná almennilega utan um málið. Ég held samt sem áður að ef við náum vel utan um veiðigjöldin, náum að hækka þau með skynsamlegum hætti, þá sé það skref í að ná sátt um þessa mikilvægu grein. En ég get líka fallist á að vika hafi verið allt of stuttur tími. Kannski hefði verið eðlilegra að taka fyrstu mánuðina í þá undirbúningsvinnu.