veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar rétt aðeins að spyrja hana út í það sem hún segir um að hækka veiðigjöldin. Það er nefnilega kannski það sem við viljum raunverulega vera að ræða hér inni: Hve mikið er hægt að hækka veiðigjöldin og hvað erum við að bera saman? Við viljum ekki endilega bera okkur saman við Noreg en þannig er þetta frumvarp. Meira og minna allur göngufiskur er ólíkur þannig að hvernig getum við sagt að makríll eða loðna sé eins hér og í Noregi, ef við berum saman við Noreg? Þess vegna spyr ég: Er þetta frumvarp tækt til að ná einhverri sátt?