veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir sína spurningu. Eins og ég kom inn á áðan er það ekki að ástæðulausu að ég spyr hæstv. ráðherra málaflokksins tíu spurninga. Það er ekki gert til að tefja mál, það er ekki gert til að vera með einhver leiðindi í þingsal. Þvert á móti er það gert af því að ég tel að veiðigjöld skipti máli fyrir þjóðina. Ég held að það sé sanngjarnt og réttlátt að við reynum að fá sem mestan ábata af greininni án þess að draga úr fjárfestingatækifærum hennar og án þess að skaða samkeppnishæfni. Ég held að með gögnum og greiningum getum við komist þangað og spurningarnar sem ég bar á borð hér í minni fyrstu ræðu eru liður í því að ná utan um þessa heildarmynd. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að það þarf að ná betur utan um heildarmyndina til þess að þingheimur — það getur vel verið að ráðherrar búi yfir öðrum upplýsingum — nái að fullu utan um málið.