156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:21]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi þakka fyrir þær fjölmörgu ræður sem fluttar hafa verið í dag og í gær. Umræðan hefur að mestu leyti verið mjög málefnaleg og áhugaverð þó svo að nálgun okkar á viðfangsefnið og verkefnin sé ólík. Það er ekkert óeðlilegt í sjálfu sér þegar við erum að ræða um breytingar á veiðigjaldi. Umræðan hefur vissulega farið út um víðan völl, um kvótakerfið í heild sinni, um framsalið og byggðaþróun, tilfærslu kvóta í gegnum tíðina og strandveiðar svo að eitthvað sé nefnt. En allt tengist þetta málefni dagsins sem er hækkun á veiðigjöldum útgerðarinnar eða breyting á útreikningi veiðigjalda sem verður samkvæmt breytingunni í þessu frumvarpi breyting á skráðu aflaverðmæti uppsjávartegunda, þ.e. norsk-íslenskrar síldar, annarrar síldar, kolmunna og makríls. Viðskipti með afla þeirra tegunda eru nánast eingöngu í beinni sölu, þ.e. á milli skyldra aðila. Ég les hér upp úr greinargerð frumvarpsins, með leyfi forseta:

„Vísbendingar eru um að verðmyndun í slíkum viðskiptum á Íslandi gefi ekki rétta mynd af raunverulegu markaðsverði.“

Í öðru lagi eru lagðar til breytingar á skráðu aflaverðmæti þorsks og ýsu og með sama hætti og lýst er hvað varðar áðurnefndar tegundir uppsjávarfisks fer stór hluti viðskiptanna með þorsk og ýsu fram í beinni sölu. Það er sem sagt talið að nægileg viðskipti séu með ýsu og þorsk á fiskmörkuðum sem ætla má að geti gefið rétta mynd af aflaverðmæti. Til þess að milda þessi áhrif á litlar og meðalstórar útgerðir eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á frítekjumarki skv. 6. gr., sem ég ætla ekkert að fara nákvæmlega yfir en er ætlað að koma til móts við þær fjölmörgu athugasemdir sem sveitarfélög og hagaðilar hafa gert við frumvarpið.

Þetta frumvarp, verði það að lögum, tekur gildi 1. janúar á næsta ári. Upphaflega stóð til að veiðigjöldin myndu hækka um einhver 100%, úr 10% í 20%, ég held að verið sé að miða við árið 2023. En með þeirri breytingu sem var lýst hér að ofan, með breytingu á frítekjumarki, munu veiðigjöldin hækka um 17,3 milljarða kr. á ári, það er um 7,3 milljarða hækkun á ári.

Það hefur verið til umræðu hér í þingsal, virðulegur forseti, hvort þetta sé leiðrétting eða skattahækkun. Það er alveg ljóst í mínum huga, og það kemur fram hér í á bls. 14 eða 15 í þessu frumvarpi, ef ég man rétt, að það er ágreiningslaust að veiðigjaldið er skattur þannig að hér er um skattahækkun að ræða. Það er alveg sama hvaða orð við notum í því, það er tekið á því í greinargerðinni með í frumvarpinu.

Mér finnst líka mikilvægt að það komi fram hér, og það er alveg ljóst í mínum huga, að stærri útgerðir og einhverjar útgerðir munu geta greitt þessi veiðigjöld og hafa svigrúm til að borga hærri veiðigjöld. Við eigum ekkert að vera feimin við að ræða veiðigjöld hér, hvort sem við getum hækkað þau eða lækkað þau. Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af er sú aðferðafræði sem við erum að beita hér og kemur fram í frumvarpinu. Ég held að hún sé ekki góð og hef áhyggjur af því að það verði ansi margar útgerðir, minni og meðalstórar, og vinnslur sem muni ekki ráða við þessa hækkun. Ég get ekki ímyndað mér, virðulegur forseti, að það sé raunverulega það sem ríkisstjórnin ætlar að ná fram, þ.e. að koma höggi á litlar og meðalstórar útgerðir sem í mörgum tilfellum eru burðarás byggðarlaganna hér hringinn í kringum landið.

Það sem mig langar kannski aðallega að ræða hér í ræðu minni í kvöld er þetta: Við höfum setið í þessum þingsal og rætt þetta mál í allan gærdag og í allan dag þannig að margt hefur komið fram. Oftar en ekki hafa athugasemdir sveitarfélaganna verið til umræðu hér. Þau 26 sveitarfélög sem sendu inn umsagnir tala öll í svipaða átt. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór aðeins inn á þetta í ræðu sinni í dag. En það sem ég vil ræða er: Hvað eru sveitarfélögin að segja varðandi þetta frumvarp? Mér hefur fundist vanta svolítið upp á það að við gröfum okkur ofan í það og hlustum á það hvaða áhyggjur sveitarfélögin hafa af þessu frumvarpi. Hvað er það í frumvarpinu sem þessi 26 sveitarfélög, auðvitað mismunandi milli sveitarfélaga, hafa svona miklar áhyggjur af?

Það vantar betri greiningar, eins og margoft hefur komið fram, fyrir sveitarfélögin og fyrir útgerðirnar. Hvað mun þetta í raun og veru þýða fyrir landsbyggðina? Þetta mun koma harðast niður þar, á landsbyggðinni, íbúum og sveitarfélögum á landsbyggðinni. Eðlilega eru sveitarstjórnarmenn uggandi þegar um óvissu grunnatvinnugreinar margra sveitarfélaga er að ræða. Í sumum sveitarfélögum koma um 50% af tekjum sveitarfélagsins frá sjávarútvegi og tengdri starfsemi.

Mig langar, virðulegur forseti, að fara aðeins yfir umsagnir frá sveitarfélögunum en ég er búinn að lesa hverja eina og einustu þeirra. Það er nú efni í ansi margar 15 mínútna ræður að fara yfir það allt saman en ég er búinn að taka út það sem mér finnst áhugaverðast í hverri einustu umsögn. Ég held að það sé mikilvægt að það komi fram í þingræðu hvað sveitarfélögin eru að hugsa. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Það hefur ekki komið fram.

Ég ætla að byrja á Grundarfjarðarbæ sem gerir athugasemd við það að framlögð frumvarpsdrög séu kynnt án þess að fyrir liggi nein greining á áhrifum boðaðrar lagabreytingar fyrir sveitarfélögin og tekjustofna þeirra. Það vanti greiningu á umfangi sjávarútvegs í atvinnulífi sveitarfélaga, samsetningu eða tegund sjávarútvegsfyrirtækja o.fl. Vitnað er í það að með hliðsjón af útgerðarmynstri í sveitarfélaginu Grundarfjarðarbæ sé kallað eftir frekari greiningum og frekara niðurbroti.

Ég bið hv. þingmenn að taka vel eftir því sem segir í umsögn Langanesbyggðar, með leyfi forseta:

„Í Langanesbyggð sjáum við fyrir okkur að missa bróðurpartinn af útsvarstekjum okkar verði þetta frumvarp að lögum.“

Þetta er sveitarstjórnarfólkið í Langanesbyggð að skrifa til Alþingis og ég les það aftur:

„Í Langanesbyggð sjáum við fyrir okkur að missa bróðurpartinn af útsvarstekjum okkar verði þetta frumvarp að lögum.“

Í framhaldinu segir:

„Áður en þetta frumvarp var lagt fram hafði ríkisvaldið veitt okkur mjög þung högg í atvinnulífinu. Byggðakvóti Þórshafnar var skertur úr 102 tonnum í 32 […] og engin svör hafa fengist frá ráðuneytinu um ástæður. […] Sértæki strandveiðikvótinn var skertur um 25% á Bakkafirði í byrjun árs og fór úr 400 tonnum í 300 tonn. Það varð til þess að önnur af tveimur fiskvinnslum lokaði þar sem sá kvóti sem var til úthlutunar nægði ekki báðum fiskvinnslum. Til að bíta höfuðið af skömminni var byggðakvóti Bakkafjarðar skertur um 15 tonn aðeins hálfum mánuði eftir að ríkið sleppti hendinni af aðgerðum sínum á Bakkafirði vegna Brothættra byggða.“

Að lokum segir:

„Byggðaráð Langanesbyggðar skorar á ríkisstjórnina að hugsa út fyrir höfuðborgarsvæðið. Gera ítarlega greiningu sjálft á áhrifum þessarar breytingar og færa rök fyrir þeim önnur en þau pólitísku rök að verið sé að færa til fjármagn frá landsbyggðinni þar sem það verður sett í einhverja óskilgreinda hít og innantóm loforð um að það fari í innviðaskuld.“

Ísafjörður:

„Umrædd breyting getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir sjávarútvegssveitarfélög sem reiða sig á greinina til atvinnu og tekjuöflunar. Þrátt fyrir þessa óvissu fyrir sveitarfélög hafa engin gögn verið lögð fram um áhrif tillögunnar á landsbyggðina né einstök sveitarfélög sem er með öllu óásættanlegt.“

Fjallabyggð:

„Fjallabyggð gerir verulegar athugasemdir við stuttan umsagnarfrest […] sérstaklega í ljósi þess að engin greiningargögn eru lögð fram og eins og áður segir því mikil óvissa um áhrifin. Ómögulegt er fyrir sveitarfélagið að afla sér nauðsynlegra upplýsinga með svo skömmum fyrirvara.“

Vopnafjörður:

„Nýlega hefur ríkisstjórn Íslands boðað hækkun veiðigjalda, sem að óbreyttu gæti komið sérstaklega illa niður á Vopnafjarðarhreppi þar sem meginuppistaða af lönduðum og unnum afla í sveitarfélaginu eru uppsjávarfisktegundir, loðna, makríll, kolmunni og síld.“

Vestmannaeyjar:

„Það er óásættanlegt að ráðherra og ríkisstjórn leggi fram frumvarp um tvöföldun veiðigjalda án þess að þeim fylgi ítarlegar upplýsingar um þau áhrif sem slík breyting hefur á sveitarfélög almennt og þá sérstaklega þau sveitarfélög þar sem sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnugrein. Með aukinni skattheimtu, hvort sem hún er í formi aukinna kolefnisgjalda eða hækkunar veiðigjalda, bendir allt til að áhrif á sjávarútvegsfyrirtækin í sveitarfélaginu verði umtalsverð. Hætt er við að geta þeirra til að efla reksturinn með nýfjárfestingum verði minni og að störf tapist með tilheyrandi tekjutapi fyrir sveitarfélagið.“

Bolungarvík:

„Bolungarvíkurkaupstaður gerir ekki athugasemdir við sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af auðlindum […] Sveitarfélagið lýsir hinsvegar yfir miklum áhyggjum af áhrifum frumvarpsins á minni útgerðir og fiskvinnslur. Aukin gjaldtaka mun án nokkurs vafa hafa umfangsmikil áhrif á greinina og að öllum líkindum auka samþjöppun í greininni með tilheyrandi fækkun starfa. Jafnframt er líklegt að aukin gjaldtaka muni leiða til minni samfélagsþátttöku sjávarútvegsfyrirtækja með afar neikvæðum áhrifum til lengri tíma.“

Suðurnesjabær:

„Bæjarstjórn lýsir áhyggjum af því að framkvæmd laganna, ef þau verða samþykkt, muni hafa neikvæð áhrif á umsvif sjávarútvegsfyrirtækja í sveitarfélaginu. Starfsemi þeirra leiðir af sér ýmis afleidd störf, svo sem ýmsa þjónustustarfsemi sem er mikilvæg atvinnulífi hvers sveitarfélags. Þá hefur bæjarstjórn áhyggjur af því að lögin munu hafa neikvæð áhrif á landvinnslu sjávarafla og geti jafnvel valdið því að verulega dragi úr fiskvinnslu á landi.“

Ég sé, virðulegur forseti, að ég kemst ekki nema hálfa leiðina í þessum pakka mínum. Ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég á hér eftir Dalvík. Ég á hér eftir Snæfellsbæ. Ég á hér eftir Grindavík. Ég skora á hv. þingmenn að lesa þessar umsagnir ef þeir eru ekki búnir að því nú þegar. Ég skora á hv. þingmenn að gera það. Og Sveitarfélagið Skagafjörður. Ég ætla að eiga það inni í næstu ræðu. En þetta er allt á sömu bókina lært.

Mig langar að eyða síðustu mínútum mínum, virðulegur forseti, í að ræða aðeins um frumvarpið. Þetta sem ég var að lesa upp hér áðan eru áhyggjur sveitarfélaganna hringinn í kringum landið. Þetta eru þær áhyggjur sem ég hef og við sem höfum verið að tala um þetta mál og ekki hefur verið komið til móts við þær nema að mjög litlu leyti. Það er áhugavert að í greinargerð með frumvarpinu er tekið á áhyggjum sveitarfélaganna í sérkafla sem er merktur 5.1.3. Þar er svar ráðuneytisins eftirfarandi, með leyfi forseta, og ég ætla bara að minna þingheim á það sem ég var að lesa áðan, áhyggjur sveitarfélaga. Ég ætla að minna hv. þingmenn á umsögn Langanesbyggðar. Þetta er svarið, virðulegur forseti, sem birtist hér í frumvarpinu. Það er á þessa leið:

„Í frumvarpinu er kveðið á um breytingar er varða viðmið um aflaverðmæti við útreikning reiknistofns veiðigjalda fyrir fimm tegundir nytjastofna. Í frumvarpinu eru því ekki lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna eða útgjöld sveitarfélaga.“

Punktur. Þetta er svarið. Þetta er svar ráðuneytisins við áhyggjum sveitarfélaganna. Þetta hefur ekki áhrif á ykkur. Við erum ekki að skattleggja ykkur eða breyta ykkar skattstofnum þannig að okkur ber ekki skylda til þess að reikna það út hvort þetta hefur einhver fjárhagsleg áhrif eða ekki fyrir sveitarfélög.

Virðulegur forseti. Þetta er ekki boðlegt. Við hér á Alþingi Íslendinga getum ekki boðið hinu stjórnsýslustiginu upp á þetta því að við erum ekki ein. Það eru tvö stjórnsýslustig á Íslandi. Það er annars vegar Alþingi og hins vegar eru það sveitarstjórnirnar. Og þegar sveitarstjórnarstigið, 26 sveitarfélög, koma nánast fram með samhljóma athugasemdir við frumvarp sem Alþingi leggur fram þá er ekki boðlegt að svara því í greinargerð með þessum hætti. Við verðum að gera betur.