veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirgripsmikla og góða ræðu um það hvernig þetta frumvarp er unnið og undirbúið og hvaða gögn liggja þar að baki. Hv. þingmaður lagði út af umsögnum sveitarfélaganna. Þetta eru 26 sveitarfélög sem mér reiknast til að sé þá yfir helmingur þeirra sveitarfélaga sem eru fyrir utan Hvítár-Hvítársvæðið. Það er nær helmingur sveitarfélaga í landinu sem er fyrir utan suðvesturhornið sem hefur verulegar áhyggjur af þessu máli. Þessar umsagnir voru lagðar fram með þeim stutta umsagnarfresti sem var í samráðsgáttinni, hann var mjög stuttur.
Ég vil því spyrja hv. þingmann: Hefði mátt búast við fleiri umsögnum og frá fleiri hópum, t.d. öðrum aðilum í byggðunum, í nýsköpunarfyrirtækjum o.fl.? Hvaða umsagna getum við vænst nú þegar þetta kemur til meðferðar á Alþingi, þegar fyrirtækin, félagasamtökin og hagaðilar í samfélaginu hafa haft lengri tíma til að átta sig á málinu, átta sig á áhrifunum og útbúa umsagnir, en þurfa ekki að gera það í flýti í skjóli myrkurs til að senda leynifélagi Kristrúnar Frostadóttur umsagnir?