veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það er alveg rétt að þessi 26 sveitarfélög eru sennilega meira en helmingur þeirra sveitarfélaga sem við getum talið sem landsbyggðarsveitarfélög, fyrir utan Hvítár-Hvítár svæðið. Það segir bara ansi mikla sögu, virðulegur forseti, þegar þú ert kominn með umsagnir frá helmingi sveitarfélaga landsins eða þar um bil, frá landsbyggðarsveitarfélögum sem eru allar á sömu bókina lærðar. Það ætti að hringja einhverjum bjöllum, að við séum kannski ekki algerlega á réttri vegferð í þessu máli.
Það er algjörlega rétt, sem hv. þingmaður kom hér inn á, að þrátt fyrir stuttan frest komu þessar umsagnir. Og á hverju getum við átt von? Ég held að það sé algerlega ljóst að þær umsagnir sem nefndinni munu berast í kjölfarið á því að við klárum þetta mál og það gengur til nefndar, ef við náum því, verði taldar í tugum. Því að það er þannig, og þetta þekkjum við sem búum úti á landi, við sem búum í sveitarfélögum þar sem sjávarútvegurinn er mikilvægur, að það eru ekki bara vinnslan og veiðarnar sem eru undir, það er allt annað sem reiðir sig á vinnslu og veiðar. Öll þessi nýsköpun og þróun og tæknigeirinn og það er endalaust hægt að telja upp. Ég á von á því og myndi veðja á það, ef ég ætti að veðja, að þær umsagnir sem við eigum von á fari langt með að slá met í þinginu.