156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:41]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni greinargóð svör. Mig langaði einmitt að fjalla betur um umsagnir sveitarfélaganna, þær umsagnir sem eru komnar. Hvernig hagaðili eru sveitarfélögin? Hverjir eru það sem eru að semja þessar umsagnir? Hverjir eru að senda okkur þessi varnaðarorð? Það er eins og maður segir, fólkið á gólfinu, fólkið á vettvangi; fólkið sem hefur búið í sínum samfélögum í gegnum gríðarlegar breytingar í sjávarútvegi, það veit nákvæmlega hvernig hver breyting hefur haft áhrif, hvernig kerfið virkar og hvaða áhrif það hefur í þeirra sveitarfélagi. Þetta eru ekki aðilar sem hafa beina fjárhagslega hagsmuni af þessu heldur óbeina. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá stendur í frumvarpinu að það hafi ekki nein bein fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin en skipta þessi óbeinu áhrif eitthvað minna máli og eru einhverjir betur til þess fallnir að þekkja söguna, þekkja áhrifin en einmitt samfélögin sjálf, sveitarfélögin? Verðum við ekki að horfa á þessar umsagnir í því ljósi? Þetta eru þeir sem þekkja best til.