veiðigjald.
Virðulegur forseti. Þetta er nefnilega algerlega hárréttur punktur hjá hv. þingmanni þegar hann spyr að því hvernig hagaðilar sveitarfélögin séu. Það er svolítið áhugavert — og ég hef ekki lagst í þá greiningu en það væri mjög áhugavert að gera það, vegna þess að hér á þingi skiptumst við í meiri og minni hluta, þrír og þrír flokkar — að ég er alveg fullviss um að innan þessara raða, þessara 26 sveitarfélaga, eru örugglega allir flokkar landsins. Þarna er sveitarstjórnarfólk að verja hagsmuni síns svæðis óháð því hvar það stendur í pólitík. Þetta fólk sem hefur verið kosið í það verkefni að verja nærumhverfið, verja samfélögin sín, hefur áhyggjur af því að sveitarfélögin muni fara illa út úr þessu frumvarpi. Þess vegna berast okkur þessar athugasemdir og okkur ber að taka þær alvarlega, sem er ekki gert.