veiðigjald.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Sá sem hér stendur hefur einmitt verið að skoða vel umsagnir sveitarfélaganna í samráðsgátt við þetta mál. Þar má víða finna mjög góð rök og prýðisgóðan texta í þessu máli. Ég vil aðeins vísa í umsögn Grýtubakkahrepps í samráðsgáttinni, þar sem segir, með leyfi forseta:
„Sérstaklega er hætt við að áhrifa hærri veiðigjalda muni gæta út um landið, ekki síst á minni stöðum sem eiga mikið undir margvíslegri vinnslu og úrvinnslu sjávarafurða. Hætt er við að breytingin leiði til enn frekari samþjöppunar og fækkunar fyrirtækja í sjávarútvegi. Stjórnvöldum ber að styðja við og efla atvinnulíf í landinu, styðja við verðmætasköpun en ekki ýta undir útflutning á óunnum afurðum. Samanburður við sjávarútveg í löndum þar sem verulegir ríkisstyrkir renna inn í greinina er varasamur.“
Þetta er ótrúlega góður texti. Og svo að ég haldi áfram í næstu málsgrein þar sem stendur:
„Það er því flestum ljóst að þetta er nokkuð hreinn landsbyggðarskattur. Hann mun þrengja að skilyrðum atvinnulífs og þar með búsetu víða um landið. Ráðamenn tala um að tekjurnar eigi að fara aftur út á land til að styrkja innviði, svo sem vegi, sem er ekki vanþörf á. Slík loforð hafa til þessa oft verið létt í vasa enda áratugasaga af sviknum loforðum um samgöngubætur.“
Þetta er nefnilega mjög áhugavert. Og hv. þingmaður kom líka inn á umsögn Langanesbyggðar sem ég kem inn á í seinna andsvari. En varðandi lög um opinber fjármál og hverju er gert ráð fyrir þar þá er ekki gert ráð fyrir mörkuðum tekjum lengur. Í 1.500 milljarða fjárlögum eru ekki markaðar tekjur. Bara til að setja þetta í samhengi hlutanna, hvað við erum að tala um varðandi ríkisfjármálin, 1.500 milljarða, og (Forseti hringir.) hvernig popúlisminn er búinn til í kringum það að setja þetta í ákveðna vegi, ákveðna innviði, á landsbyggðinni. (Forseti hringir.) Það er meira að segja farið að rugla þessu inn í flutningskerfi raforku sem er fullfjármagnað kerfi í dag, (Forseti hringir.) það hefur bara ekki fengist leyfi til framkvæmda. Hvaða skoðun hefur hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson á þessu?
(Forseti (HildS): Forseti hvetur hv. þingmenn til að virða tímamörk sem eru tvær mínútur í fyrri umferð og ein mínúta í þeirri seinni.)