156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:46]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar. Þegar ég var að undirbúa mig fyrir þessa umræðu fór ég einmitt í þessa greinargerð og fann þessa liði sem eru m.a. aukin samþjöppun í sjávarútvegi. Ég fór í allar umsagnirnar og tók út hvað sveitarfélögin og hagaðilarnir eru að segja um þetta og ég á þetta allt til. Það er mjög áhugavert. Ég hef því miður ekki tíma til að fara yfir nema lítinn hluta af þessu, en það kemur önnur umræða.

Varðandi samþjöppun — það hefur komið fram í ræðu eins stjórnarþingmanns að hann eigi von á því að það verði samþjöppun út af þessu. En hvað segir í greinargerðinni, í frumvarpinu? Hvað segir í greinargerðinni um þetta? Hvernig bregst ráðuneytið við þessu? Jú, ég ætla að lesa það upp, með leyfi forseta. Það er nefnilega stórmerkileg setning því að það er bara ein setning. Og hlustið þið nú háttvirtir og virðulegir þingmenn:

„Í frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar er leiða til frekari samþjöppunar í sjávarútvegi.“ — Punktur.

Virðulegur forseti. Þetta er ekki boðlegt frekar en margt annað í þessu frumvarpi. Og bara enn og aftur, og ég geri mér grein fyrir því að ég er farinn að hljóma eins og biluð plata þegar ég segi: Það er ekki hægt að koma svona fram við hitt stjórnsýslustigið, við sveitarfélögin í landinu. Það er ekki hægt, þegar sveitarfélögin eru að koma hingað og kalla eftir greiningum og gögnum og koma með raunverulegar áhyggjur af frumvarpinu sem við erum að ræða hér á þingi, að þetta sé okkar svar. Þetta gengur ekki svona. Þetta er ekki hægt.