156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:49]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ef þetta mál gengur einhvern tímann til hv. atvinnuveganefndar eftir þessa umræðu, nema ráðherrann hyggist taka það til baka og betrumbæta, þá eru allar þessar greiningar eftir. Ég held að það sé risaverkefni varðandi áhrifamat frumvarpsins inn á ýmis svið. Það sem er tekið fyrir í þeim kafla frumvarpsins er ekki mjög haldbært og það verður mjög áhugavert að fá upplýsingar um það sem gerist þá í hv. atvinnuveganefnd. Hvar er frumvarpið skrifað? Er það inni í ráðuneytinu eða kemur það utan úr bæ? Maður fer aðeins að pæla: Hvaðan kemur frumvarpið? Það er eðlilegt að bera þá spurningu fram miðað við það hvernig frumvarpið er byggt upp og áhrifamatið, hversu sá kafli er veigalítill í málinu gagnvart greiningum. Það kemur fram í umsögnum, t.d. í umsögn Langanesbyggðar, sem minnst var á hér áðan, að 43% útsvarstekna þess sveitarfélags koma frá fiskveiðum og -vinnslu og mörg sveitarfélög eru með yfir 30%, (Forseti hringir.) af þessum 26 sem koma með alvarlegar athugasemdir við þessi mál og við frumvarpið í samráðsgátt.