veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Já, það er þetta með greiningarnar og ég deili þeim áhyggjum með hv. þingmanni að mér finnst greiningar vanta. Það er það sem sveitarfélögin hringinn í kringum landið hafa verið að kalla eftir, það eru þessar greiningar; að við sjáum betur á spilin, hvað við erum raunverulega að fara að gera, hvað þetta frumvarp mun raunverulega þýða fyrir okkur og fyrir sveitarfélögin. Eðlilega, þegar þú hefur ekki þessar greiningar, þá verða sveitarfélögin óróleg því að það eru miklir hagsmunir undir fyrir sveitarfélögin. Og ég velti því fyrir mér, af því að hv. þingmaður var að tala um greiningar, að það er ekki langt síðan ég og hv. þingmaður vorum í umræðu um fjármálaáætlun þar sem sömuleiðis vantaði þessar greiningar. Reyndar var reynt að telja okkur trú um að þar vantaði ekki neitt en auðvitað vantaði greiningar (Forseti hringir.) og ég held að það sé búið að staðfesta það núna, og allir orðnir sammála um það, að auðvitað vantaði greiningarnar. Ég veit ekki hvort þetta er eitthvert nýtt vinnulag hér, að sleppa greiningum.