156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:52]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans ræðu hér og mig langaði að koma aðeins inn í þetta og ræða stöðu málsins. Hér hefur líka verið talað um stöðu málsins í andsvörum og áhrif á sveitarstjórnarstigið. Ef við tökum nú bara, með leyfi forseta, mat á áhrifum frumvarps fyrri ríkisstjórnar sem sett var í samráðsgátt þá segir þar um áhrif á fjárhag sveitarfélaga: „Á ekki við.“

Núna vilja menn fara lengra. Ókei, gott og vel, skiljanlega. Við erum búin að setja frumvarpið í samráðsgátt og þingmönnum hefur orðið tíðrætt um þær umsagnir sem hafa komið inn í samráðsgátt stjórnvalda. Það er upphaflega frumvarpið sem fer út og sveitarfélögin sendu sem betur fer inn umsagnir og bentu á hvað getur haft áhrif. Gott og vel. Ráðherra hefur tekið tillit til athugasemda, gert breytingar á frítekjumarki og svarað kalli sveitarfélaga að ýmsu leyti. Ég velti fyrir mér hvort það sé ekki einmitt mikilvægt að hlusta á sveitarfélögin þarna og bregðast við. Þetta mun hafa áhrif á stöðu fyrirtækja, klárlega. Ég meina veiðigjald er ákveðin upphæð sem verður innheimt. En mig langaði að spyrja hv. þingmann út í þetta: Skiptir það engu máli að búið sé að taka tillit til athugasemda sem hafa komið fram?