156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:56]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Ég vil gleðja hann með því að það kom m.a. fram í fréttum í dag að sveitarfélögin hafi fagnað því að verið sé að hlusta á þau og gera breytingar til hagsbóta. Ég óttast það ekki. En ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur, fyrir samfélagið, fyrir sveitarfélögin. Og það að miða aflaverðmæti við raunveruleg verðmæti getur að sjálfsögðu líka haft áhrif á auknar tekjur. Ef þetta fer að smitast út í laun sjómanna, að sjómenn fái greitt í samræmi við verðmæti aflans, sem reyndar á að vera gert — ég held að það sé mikilvægt. En ég velti því fyrir mér hvort það sé í raun og veru til trafala fyrir okkur ef umsagnir sem komu inn í samráðsgáttina, sem við köllum síðan eftir eftir 1. umræðu í nefndinni, eru að rugla umræðuna hér um raunverulegt frumvarp, um frumvarpið sem hér er til umræðu en ekki frumvarpið sem fór í samráðsgáttina. Ég held að það sé mikilvægt að muna það og horfa til þess.