veiðigjald.
Frú forseti. Ég hef á undanförnum vikum ítrekað staðið í þessum ræðustóli og rætt málefni sem varða landsbyggðina og þær ógnir sem steðja að henni og þar af leiðandi þjóðinni allri. Það hefur því miður verið af nægu að taka. Segja má að þau mál sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið að koma fram með séu ekki til þess fallin að draga úr þeim áhyggjum sem ég hef haft og ítrekað viðrað í þessum sal. Þar má nefna þætti eins og úthlutun byggðakvóta sem er nú verulega skertur, t.d. í títtnefndri Langanesbyggð. Þar nægir að vitna í bókun sveitarstjórnar, með leyfi forseta:
„Sveitarstjórn harmar þær skerðingar sem eru á almenna byggðakvótanum […].
Sveitarstjórn bendir á að úthlutunin fyrir fiskveiðiárið 2024–2025 brjóti í bága við reglugerð um úthlutun byggðakvóta nr. 818/2024 […].
Fyrir fiskveiðiárið 2023–2024 fékk Þórshöfn úthlutað 102 þorskígildistonnum en fyrir fiskveiðiárið 2024–2025 er þessi kvóti skertur niður í 32 tonn sem er tæplega 70% skerðing.“
Hér bendir sveitarstjórn á brot á reglugerð en það telst sjálfsagt lítið mál hjá ríkisstjórn sem brýtur jafnréttislög þegar henni hentar. Íbúar í byggðarlaginu Þórshöfn, sem nú eru, eins og kemur fram í umsögn þeirra, að missa bróðurpart útsvarstekna sinna, eru 345 og því færri en segir í e-lið reglugerðar. Þess vegna sendi ég fyrirspurn fyrir fáeinum vikum á ráðherra þar að lútandi og hefur svar borist sem er þó illskiljanlegt. Ég hef reynt að fá túlkun á svarinu frá aðilum sem þekkja vel til í greininni sem og aðilum á sveitarstjórnarstiginu en enn ekki fundið neinn sem skilur svarið. Eins gæti ég vitnað í bókun Norðurþings sem ég hef áður gert hér í þessum sal en bæði þessi sveitarfélög ásamt Fjarðabyggð, Dalvíkurbyggð og fleiri byggðum eru með umtalsverða landvinnslu og er því mikil hætta á að frumvarp það sem hér liggur fyrir geti haft miklar afleiðingar í þeim.
Frú forseti. Annað mál sem ég hef að undanförnu vakið máls á er frumvarp til laga um kílómetragjald. Þar er einnig á ferðinni mál sem kemur mjög við landsbyggðina þar sem fullyrt hefur verið og reiknað út að jafnvel þótt eldsneytisverð lækki að fullu í samræmi við afnám vörugjalda á dælu er ljóst að kostnaður í flokki þyngstu ökutækjanna vegna notkunar á vegakerfinu valdi milli 14% og 15% óútskýrðri hækkun og kemur harðast niður á landsbyggðinni, þó einkum þeim hluta hennar sem fjærst er suðvesturhorni landsins. Enn eitt dæmið. Hér er því, virðulegur forseti, ekki um neitt annað að ræða en enn eina skattahækkunina á landsbyggðina í boði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
En hvers vegna er ég að nefna þessi tvö dæmi í umræðu um það mál sem hér liggur fyrir? Jú, það er vegna þess að mál ríkisstjórnarinnar þurfa að skoðast í samhengi svo sjá megi betur þá mynd sem er að teiknast upp í byggðastefnu stjórnvalda eða öllu heldur skorti á byggðastefnu stjórnvalda. Þau vinnubrögð sem viðhöfð eru virðast einkennast af skorti á greiningu um mögulegar afleiðingar frumvarpa vítt og breitt um landið. Það virðist vera meginstef þeirra stóru mála sem fram hafa komið til þessa og er mjög alvarlegt.
Eins er vert að nefna í þessu samhengi málefni jöfnunarsjóðs sem við ræddum hér um daginn, því að allt ber þetta að sama brunni. Þar er líka skortur á greiningum gagnvart ólíkum landshlutum og fjölbreyttum þörfum sveitarfélaga. Þar má nefna dæmi eins og að í 1. og 2. gr. viðauka er fjallað um útgjaldabreytur og vogir þeirra fyrir jöfnun vegna mismunandi útgjaldaþarfa, svo sem snjómoksturs, sem vegur 4% í útgjaldabreytu, en í skýringu greinar kemur fram að þar er eingöngu notaður samanlagður kílómetrafjöldi þeirra vega í þéttbýli þar sem sveitarfélag er veghaldari, eingöngu í þéttbýli þar sem sveitarfélag er veghaldari. Óeðlilegt er að ekki sé líka tekið til snjómoksturs á vegum með helmingaskiptum sveitarfélaga og Vegagerðar en víðfeðm sveitarfélög með dreifða byggð bera mikinn kostnað af snjómokstri í dreifbýli. Þar er í einhverjum tilfellum um að ræða sömu sveitarfélög og hafa verið nefnd hér í þessu erindi mínu og fleiri þingmanna. Það er í það minnsta ljóst að hér er um að ræða að verulegu leyti sömu landsvæðin. Því miður virðist þetta allt á sömu bókina lært þegar kemur að greiningum á áhrifum eftir ólíkum sveitarfélögum og landsvæðum og þar er tilfinnanlegur skortur. Er það frumvarp sem við ræðum hér engin undantekning frá þessu þema hæstv. ríkisstjórnar.
Það má í þessu samhengi nefna að Samtök sjávarútvegssveitarfélaga, sem eru 26 talsins, eins og nefnt hefur verið hér í ræðum, hafa mótmælt frumvarpinu frá því að það var kynnt. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldinu geti haft veruleg áhrif á tekjustofna, atvinnulíf og byggðaþróun í sjávarútvegssveitarfélögunum. Í umsögn þeirra í samráðsgátt segir:
„Tvöföldun veiðigjalda getur dregið úr rekstrarhæfni útgerða, sérstaklega þeirra sem starfa í brothættum byggðum með veikan efnahagsgrunn. Slíkt getur leitt til fækkunar starfa, minni umsvifa í tengdum greinum og aukinnar byggðaröskunar. Er það það sem vakir fyrir ríkisstjórninni að raska byggðum landsins enn frekar? Það hefur komið fram í ræðum, m.a. stjórnarliða hér í gær og dag, að það hafi verið samþjöppun. En er það það sem vakir fyrir ríkisstjórninni að raska byggðum landsins enn frekar? Kjósendur ríkisstjórnarflokkanna á landsbyggðinni hljóta að vera með bakþanka.
Fyrir sveitarfélög sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi getur þetta þýtt minnkandi útsvarstekjur, aukið atvinnuleysi og þrýsting þar af leiðandi á félagslega þjónustu. Í heild hefur tvöföldun veiðigjalda því ekki einungis áhrif á útgerðir heldur á efnahagslega og félagslega stöðu heilla byggðarlaga, sérstaklega á landsbyggðinni. Það sjá allir að ef það dregur úr umsvifum og þá skatttekjum sveitarfélaga þá kemur það niður á þjónustu við íbúa í framkvæmdum og framtíð samfélaganna.
Það má líka nefna að í umsögnum Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga er tekið undir þær áhyggjur sem ég hef nefnt hér í ræðu minni sem eru samanlögð neikvæð áhrif landsbyggðanna, þ.e. þau mál sem ég hef rakið hér ásamt fleirum; samanlögð áhrif þeirra við það frumvarp sem við ræðum hér. Á síðustu mánuðum hefur ríkisstjórnin tilkynnt um tvöföldun veiðigjalda, hækkun á kolefnisgjaldi, hækkun gjalda á fiskeldi, kílómetragjald og gjald á skemmtiferðaskip, svo að dæmi séu nefnd. Allt eru þetta mál sem geta haft veruleg áhrif á byggðaþróun og stöðu byggðanna.
Það er einnig rétt að nefna að í skýrslu KPMG, sem unnin var fyrir SFS, kemur fram að hlutdeild af skattspori á árunum 2019–2023 var 81% á landsbyggðinni. Því má segja að landsbyggðin beri uppi skattspor sjávarútvegsins. Skattspor meðalfjölda íbúa á höfuðborgarsvæðinu 2019–2023 var 296.000 kr. en skattspor á meðalfjölda íbúa á landsbyggðinni 2019–2023 2.233.000 kr. eða 7,6 sinnum stærra skattspor en á íbúa höfuðborgarsvæðisins. Áhrif breytinga í ákveðnum byggðarlögum og sveitarfélögum geta orðið veruleg. Tekjur margra sveitarfélaga byggjast að verulegu leyti á starfsemi og launþegum í sjávarútvegi. Í tíu sveitarfélögum stafa á bilinu 30–50% af útsvari vegna atvinnutekna frá sjávarútvegi. Þá eru ótalin afleidd störf í öðrum greinum sem byggjast að mestu eða jafnvel alfarið á þjónustu við sjávarútveginn samkvæmt áðurnefndri skýrslu KPMG.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að treysta skuli stoðir hinna dreifðu byggða og bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga. Hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson fór ágætlega yfir þau samskipti hér í ræðu sinni áðan. Þessi orð eru hjóm eitt þegar litið er til verka ríkisstjórnarinnar, skorts á greiningu og samráði. Ríkisstjórnin leggur fram mál um verulega hækkun veiðigjalda án nauðsynlegra greininga eða áhrifamats. Ef að baki málinu væru haldbærar greiningar og skýr rök fyrir því sem þau kalla leiðréttingu værum við að eiga hér allt annars konar samræður. Það kom einmitt fram í pallborði á ársfundi SFS í apríl að hvorki hæstv. atvinnuvegaráðherra Viðreisnar né hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gat greint aðspurð frá niðurstöðu greininga um málið né lagt þær fram, hvorki þá né síðan. Fyrir liggur vegna skorts á greiningu á heildaráhrifum frumvarpsins að ríkisstjórnin er að ríða blindum hesti fram götuna og vonar bara það besta, enda ljóst að án greininga er þrátt fyrir einhvern tilgreindan áfangastað mjög óljóst hvernig sá áfangastaður lítur út þegar engan vegvísi er að finna í greiningum um áhrif á einstök byggðarlög og öll varnaðarorð virt að vettugi, hvort heldur þau koma frá aðilum innan greinarinnar eða eru mjög vel ígrundaðar athugasemdir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga. Það er einmitt það sem hræðir mig, hvort sem um er að ræða það frumvarp sem hér um ræðir eða önnur sem hafa verið nefnd hér fyrr í ræðu minni.
Vandi okkar Íslendinga er nefnilega ekki á tekjuhliðinni, og bara getur ekki verið á tekjuhliðinni vegna þeirrar staðreyndar að hér á landi eru einhverjir mestu skattar sem þekkjast í þróuðum löndum. Vandi okkar er á útgjaldahliðinni og hvað við fáum fyrir þann pening sem við leggjum í sameiginlega sjóði. Þegar kemur að því að draga úr ríkisrekstrinum er ekkert að frétta. Flokkur hæstv. atvinnuvegaráðherra hafði uppi stór orð um aðhald í ríkisrekstri, að ná tökum o.s.frv. en lítið er að gerast. Fyrst og fremst er fókuserað á tekjuhliðina. Dæmi um það eru m.a. eitt dýrasta menntakerfi sem við þekkjum en færa má rök fyrir því að staða nemenda að loknu skyldunámi sé ekki í samræmi við það ef horft er til mælikvarða eins og PISA og nú fáum við fregnir af ástandinu í Breiðholtsskóla. Þar bera ábyrgð sömu flokkar og fara nú með stjórn landsins, illu heilli. Annað dæmi um að vandinn er ekki á tekjuhliðinni er innviðaskuld í samgöngukerfi. Þar liggur fyrir að á árunum u.þ.b. frá 2014–2021 skiluðu sér 38% tekna af ökutækjum í framkvæmdir til samgöngumannvirkja.
Það er rétt að gæta sanngirni, frú forseti, og taka hér fram að í kosningabaráttunni kom fram vilji, og var ítrekað ræddur hjá hæstv. forsætisráðherra, til að hækka auðlindagjöldin. En álíka oft kom fram að slíkar hækkanir yrðu í þrepum á tíu ára tímabili. Það er augljóslega ekki raunin. Það að breyta nafninu úr hækkun veiðileyfa í leiðréttingu auðlindagjalda breytir auðvitað ekki eðli málsins því í gegnum það sjá allir. Þar er keisarinn án klæða. En viðbrögð útgerðaraðila við þeim pólitísku áherslum um hækkun auðlindagjalda í þrepum á næstu tíu árum voru á þá leið að hafna því ekki og lýsa yfir vilja til að taka þátt í þeirri vinnu. En til að draga athyglina frá öllum vandræðaganginum fyrstu dagana var ákveðið að skeyta engu um fyrri orð og vaða fram með málið hálfklárað. (Forseti hringir.)
Er tíminn búinn, frú forseti? Það verða þá ekki fleiri orð að sinni.