156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:15]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu, hún nálgaðist það að fela í sér meiri upplýsingar en frumvarpið sjálft um stöðu og afleiðingar. En ég vil byrja á að ræða aðeins við hv. þingmann um skattsporið sem hann talaði um, hve mikið af því væri á landsbyggðinni. Ég reiknaði þetta svona gróft og þá eru það tæpir 70 milljarðar sem er þá skattsporið á landsbyggðinni, sem er þá beint skattspor af sjávarútveginum, fyrir utan möguleg óbein áhrif. Réttlætingin fyrir þessari svokölluðu leiðréttingu sem er ekkert annað en skattlagning — þegar Hæstiréttur segir að eitthvað sé skattur þá hlýtur það að vera skattur, við þurfum að virða þrískiptingu ríkisvaldsins hér. Hvað finnst hv. þingmanni um að þessi aukaskattlagning á grunnatvinnuveg, sem stendur hér undir útflutningi og mikilli verðmætasköpun og tryggir velferðina í samfélaginu, sé réttlætt með því að það eigi að takast á við hina miklu innviðaskuld sem við öll þekkjum? Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem ég tel að kunni vel á gröfu, út í þetta mál. Í hans kjördæmi hefur t.d. verið kallað mikið eftir aukinni vetrarþjónustu við Dettifossveg. Svo er það á Vestfjörðum þar sem þarf keðjur að sumri til vegna ástands vega, þeir kalla líka mikið eftir mikilli þjónustu á veturna og ástand vega er alla vega. Telur hv. þingmaður að þeir 5,8 milljarðar sem eiga að fara af 17 milljarða veiðigjaldi séu þá sanngjörn réttlæting fyrir því, að byggðirnar séu sjálfar að borga þá 5,8 milljarða sem eiga að koma aukalega inn í samgöngurnar með þessu frumvarpi?