veiðigjald.
Frú forseti. Ég skildi nú restina af ræðunni minni eftir og mun væntanlega fá tækifæri til að klára hana í seinni umferð. En til að bregðast við andsvari hv. þingmanns þá get ég ekki annað sagt en að 5,8 milljarðar í stóra samhenginu, þegar áætluð innviðaskuld í samgöngukerfinu er að nálgast 300 milljarða, eru í besta falli hjákátleg afsökun til að fara af stað í þetta ferli. Það hljóta að vera betur ígrundaðar hugmyndir og forsendur á bak við þessa vegferð en þessir 5,8 milljarðar. Setjum það í eitthvert samhengi. Áætlaður kostnaður við borgarlínu er 311 milljarðar. Ef það væri einlægur vilji hæstv. ríkisstjórnar að fara í raunverulegt átak í samgöngukerfinu úti á landi þá tel ég algjörlega einsýnt að langöflugasta aðgerðin til að komast af stað í það verkefni — sem er brýnt, mjög brýnt, eins og þingmaðurinn nefndi eru vegir í Norðvesturkjördæmi bókstaflega handónýtir, og handónýtir vegir í Norðausturkjördæmi — væri að taka þessa borgarlínu og slaufa henni. Þá eru 311 milljarðar í hús af því að við erum að sleppa akrein fyrir strætó.