veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir spurninguna. Svo ég svari því bara hreint út þá held ég að það séu til betri leiðir viljum við sækja meiri tekjur úr þessari grein heldur en áætlað er í þessu frumvarpi. Það er hins vegar, svo það sé sagt, bara persónuleg skoðun mín. Ég gæti ímyndað mér t.d. að það væri heppilegra að skattleggja, svo við notum réttu orðin, frekar aðila út úr greininni þannig að þegar menn eru að yfirgefa greinina og fara með peninginn út úr greininni þá hættir peningurinn að vera í vinnu, hann hættir að búa til ný störf, hann hættir að styrkja nýsköpun o.s.frv. Að hann sé áfram í vinnu alveg þangað til einhver aðili, vegna aldurs eða einhverra breytna, kýs að yfirgefa greinina. Þá held ég að sé sanngjarnara að sækja hann.