156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á að þakka Þorgrími Sigmundssyni fyrir prýðisgóða ræðu og ég ætla ekki að freistast til að fara að ræða Borgarlínu eða samgöngusáttmálann á höfuðborgarsvæðinu og allt sem því fylgir. Það eru þessar greiningar og síðan þetta með lög um opinber fjármál. Svo að ég ítreki það enn einu sinni: Skattheimta ríkisins, það eru ekki markaðir tekjustofnar þannig að popúlismi um að eitthvað fari í eitthvert ákveðið verkefni eins og vegaframkvæmdir, það er bara ekki gert ráð fyrir því í lögum um opinber fjármál svo að það sé alveg á hreinu. Það er í löggjöf sem var samþykkt hér í desember 2015 að þannig yrði ekki staðið að málum.

Ég kom áðan inn á umsögn Grýtubakkahrepps í samráðsgáttinni um málið og ég vil aðeins vitna, með leyfi forseta, í umsögn Langanesbyggðar þar sem segir:

„Þetta gjald leggst mjög þungt á nær allar byggðir utan höfuðborgarsvæðisins sem byggja á sjávarútvegi af hvaða stærð sem fyrirtækin eru. Sjávarútvegur er burðarásinn í atvinnulífi mjög margra sveitarfélaga á landsbyggðinni. Greining Vífils Karlssonar þar sem tekinn er saman uppruni útsvarstekna í nokkrum sjávarbyggðum talar sínu máli og tekur af allan vafa um afleiðingarnar.“

Þá kemur þessi talnaruna sem við þekkjum: Snæfellsbær, 49% útsvarstekna koma frá útgerð og fiskvinnslu, Langanesbyggð 44%, Grýtubakkahreppur 40%, Kaldrananeshreppur 40%, Grundarfjörður 39%, Vopnafjörður 37%, Bolungarvík 35%, Dalvíkurbyggð 34%, sveitarfélög á höfuborgarsvæðinu 1–2%.

Það er því áhugavert sem kom fram hjá hv. þingmanni hér áðan varðandi skattsporið að þetta er skattspor upp á 2.233.000 kr. á Hvítár-Hvítár svæðinu. Innan þess svæðis, þar sem 85% þjóðarinnar búa, þá eru það 296.000 kr. eða um 300.000 kr. Það að það sé sjö- til áttfaldur munur segir allt sem segja þarf þegar við tölum um að þetta sé hreinn og beinn landsbyggðarskattur, þegar við ræðum þetta mál.