veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans innlegg og spurningu. Án þess að taka einhverja endanlega afstöðu til þess hvort greinin geti lagt meira af mörkum þá eru þetta hins vegar tölur sem verða ekkert vefengdar. Þetta eru bara tölur sem liggja fyrir, þetta kemur fram í umsögnunum, eins og ég vék að áðan varðandi Langanesbyggð, þar sem í ofanálag er farið í skerðingar á byggðakvóta, úr 102 þorskígildistonnum niður í 32. Þar við má bæta að viðkomandi sveitarfélag kemur líka illa út úr breytingum hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þess vegna vék ég að því í ræðu minni hér áðan að þetta verður að skoðast í einhverju stærra samhengi. Hver er byggðastefna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur? Er hún sú sem er að birtast okkur hér á þessu stutta vorþingi; að hvert málið á fætur öðru skortir ekki aðeins frekari gögn og greiningar heldur virðast menn í hverju málinu á fætur öðru ætla að sækja meiri tekjur út á land? Mér líst mjög illa á það.
Af því hv. þingmaður nefndi hugtak sem ég notaði í grein fyrir einhverjum árum síðan, frá Hvítá til Hvítár, ef það er meginstefið að það skuli sækja tekjur til rúmlega 15% þjóðarinnar til að standa undir uppbyggingu fyrir tæplega 85% þjóðarinnar þá er eitthvað brogað. Ég minni aftur á að til að mynda Fjarðabyggð skaffar mestar tekjur per einstakling á Íslandi en það skilar sér ekki að sama skapi til baka.