156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:32]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Hvítá–Hvítá einmitt. Sá sem hér stendur setti þetta inn í skýrslu þegar ég var formaður í starfshópi 2018. Einmitt, 85%. Þess vegna gleymir maður aldrei þessum hlutföllum eða prósentutölum, 85% utan Hvítár–Hvítár. Ótrúleg þróun sem hefur orðið á undanförnum áratugum varðandi þennan þátt. Það er nefnilega þannig að við erum að fást við hér í þinginu — nú sit ég í atvinnuveganefnd þar sem við erum að fást við búvörulögin sem eru nú enn eitt svona málið. Þau eru nefnilega nokkur svona mál. Þetta er nú það stærsta í tölum varðandi landsbyggðina. En ég hef líka miklar áhyggjur af innviðagjöldunum á skemmtiferðaskipin og hvernig verður staðið að því og gagnvart hafnarsjóðum víða á landsbyggðinni. Í kjördæmi okkar hv. þm. Þorgríms Sigmundssonar þá er það þannig að víðast hvar eru tekjurnar af skemmtiferðaskipunum 50, 60, eða 70% af hafnarsjóðunum. Við erum ekkert að ræða halla á þeim í dag vegna skemmtiferðaskipanna. (Forseti hringir.) Þannig að þessi þrjú mál, innviðagjöldin, búvörulögin og þetta, þetta eru allt stór mál sem við erum að fást við núna (Forseti hringir.) og á næstu misserum og öll eru í sömu áttina gagnvart landsbyggðinni.