veiðigjald.
Virðulegur forseti. Verðmætasköpun gerist ekki af sjálfu sér. Við höfum náð gríðarlegum árangri á þeim bænum í atvinnustarfsemi tengdri sjávarútveginum. Einn vinsælasti orkudrykkurinn í dag er m.a. unninn úr afurðum fisksins. Kerecis skilaði 40 milljörðum í ríkiskassann hérna um árið og mörg þúsund störf eru í þessum geira um landið allt, hvort sem er í veiðum eða vinnslu. Skipin eru í stöðugri þróun með tilliti til áhrifa á umhverfið og kostar nýtt skip í dag marga milljarða króna. Þar er betri aðstaða fyrir sjómenn en í eldri skipum. Þau eru umhverfisvænni og stuðla að hagkvæmari veiðum. Með því að hækka veiðigjaldið eins mikið og verið er að gera núna er verið að höggva í fjárfestingargetu þessara fyrirtækja. Er raunverulega sanngjarnt og réttlátt að mati stjórnarliða að vega svo að fjárfestingargetu atvinnugreinar, sem kemur m.a. niður á frekari endurnýjun flotans og bættum aðstæðum sjómanna um borð? Síðustu tvö ár varð loðnubrestur og því fylgja minni tekjur í ríkiskassann alls óháð veiðigjaldi og tilvist þess, því þegar verðmætasköpunin er minni minnka tekjurnar sem skila sér í ríkiskassann. Minna er til skiptanna og minna stendur undir velferðarkerfunum. Það er þessi verðmætasköpun sem við reiðum okkur á sem samfélag, ekki skattarnir sjálfir, hvaða nafni sem þeir nefnast.
Mikið hefur verið rætt um sanngirni og réttlæti undir þessari umræðu. Það eru mjög huglæg orð og stjórnarliðar telja að sín sanngirni og réttlæti sé það eina rétta. Við Sjálfstæðismenn erum ekki á móti breytingum, þvert á móti, en þær verða að vera gerðar í samráði við viðeigandi hagsmunaaðila. Umsagnir um þetta mál, þá sérstaklega frá sveitarfélögum, minnast flestar á stuttan umsagnarfrest og skort á samráði. Ef ríkisstjórnin hefði unnið þetta mál í víðtækari sátt við hagaðila þá hefði mögulega verið meiri sátt um þetta mál hér í þingsal. Þessi víðtæka sátt sem mikið er talað um myndast a.m.k. ekki þegar mál eru unnin með þessum hætti.
Með lögum skal land byggja en með ólögum eyða, sagði Njáll á Bergþórshvoli eitt sinn. Þau orð eiga enn þann dag í dag vel við. Við sem erum kjörin á Alþingi verðum að virða og ganga vel um þessa ábyrgð sem okkur er falin. Með álíka ráðstöfun í einum bita er verið að ganga mjög nærri einni atvinnugrein landsins. Í mínum huga eru þessi lög einfaldlega ólög. Við viljum stuðla að því að hér sé byggð í landinu og fjölbreytt atvinnulíf. Ef ein grein leggst af í litlu sjávarþorpi er alls ekki sjálfsagt að önnur komi í staðinn. Við verðum að taka það með í reikninginn. Ég kem ekki úr sjávarþorpi en er búsett úti á landi, utan Hvítánna, á svæði þar sem landbúnaður er stundaður ásamt glæsilegri ferðaþjónustu. Enginn skildi halda að aðrar atvinnugreinar og önnur störf á þessu landi séu hólpin. Þessar atvinnugreinar eru næstar á matseðli ríkisstjórnarinnar í skattahækkunum og sennilega sitthvað fleira. Hvergi í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að hækka skuli veiðigjöld með þessum hætti. Það sem þó er nefnt varðandi sjávarútveg er að markmiðum ríkisstjórnar verði náð með því að, með leyfi forseta, „ýta undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu. Í sjávarútvegi verða gerðar auknar kröfur um gagnsæi í eignarhaldi og skerpt á skilgreiningu tengdra aðila.“
Ekkert um hækkun á veiðigjaldi. En svo er fjallað um auðlindagjöld, að markmiðum ríkisstjórnar verði náð með, með leyfi forseta, „mótun auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld sem renni að hluta til nærsamfélags.“
Ég fæ ekki séð að þetta frumvarp stuðli að því að færa nærsamfélögum hlut í veiðigjöldum eða þessari hækkun á því. Hvar í frumvarpinu kemur þetta fram? Í frumvarpinu segir raunar, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu eru því ekki lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna eða útgjöld sveitarfélaga.“
Það er greinilegt að veiðigjaldið mun ekki renna til nærsamfélagsins. Enn fremur mun það sem þó skilar sér til nærsamfélagsins að öllum líkindum minnka þegar störfum fækkar og fyrirtækin leggja upp laupana.
Það sem einkennir umsagnir um þetta mál er að umsagnaraðilar hefðu viljað lengri umsagnarfrest. Að umsagnarfrestur í jafn stóru máli og þessu hafi verið örfáir dagar er óforsvaranlegt. Þetta mál mun hafa víðtæk áhrif og hagaðilar höfðu ekki tíma til að meta þau áhrif með fullnægjandi hætti. Vonandi verður meðferð þessa máls betri í hv. atvinnuveganefnd.
Yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar er að rjúfa kyrrstöðu og vinna að aukinni verðmætasköpun í atvinnulífi. Umræða stjórnarliða í þessum sal hefur öllu heldur snúist um það hvernig eigi að skattleggja atvinnulífið. Fólkið á að hlaupa hraðar, vinna meira og sjá til þess að ríkið eigi nóg fyrir gæluverkefnum sínum. Er það þetta margumtalaða réttlæti eða sanngirni? Ég vil í alvörunni fara að sjá aðgerðir sem stuðla að aukinni verðmætasköpun, ekki linnulaust tal um að skattleggja og nýta svokallaða vannýtta tekjustofna. Fólkið í mínum heimahögum bíður ekkert sérlega spennt eftir skattlagningu frá ríkinu af náttúruperlum, á ferðaþjónustuna, því sem er næst á matseðli skattgræðgisstjórnarinnar.
Stjórnarliðar hafa ítrekað komið upp í pontu og sagt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ætlað að hækka veiðigjöld. Við erum til samtals til að gera breytingar á veiðigjöldunum en ekki til hækkunar á sköttum. Fyrrum matvælaráðherra lagði fram frumvarp til hækkunar á veiðigjöldum í samráðsgátt. Það fór aldrei fyrir ríkisstjórn, það er einfaldlega þannig. Það var gert í nafni Vinstri grænna og hvar enduðu þau? A.m.k. ekki inni á þingi.
Ég var að vonast til þess að þetta samtal yrði tekið upp á Alþingi á ábyrgum nótum og með samráð að leiðarljósi. Ljóst er að það var ekki í áætluninni heldur stóð til að keyra í gegn skattahækkun án þess að hafa gögn sem sýna fram á hvernig þetta mun hafa áhrif á byggðir landsins, án þess þó að hafa unnið nauðsynlega undirbúningsvinnu, án þess að skeyta miklu um störfin á landsbyggðinni, án þess að tryggja að kakan stækki í stað þess að minnka. Verðmætasköpun á undir högg að sækja undir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.