veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aldeilis ágæta ræðu og ég heyri áhyggjur hennar sem hún hefur orðið áskynja í nærsamfélagi sínu. Ég tek undir með henni að það er næsta víst og blasir við að það hefur ekkert samráð verið haft í þessu máli og í raun og veru hef ég velt því töluvert fyrir mér til hvers þetta mál sé lagt fram. Það er lagt fram og það byrjaði nú á því að það átti að hala inn 10 milljarða fyrir ríkissjóð sem nú eru orðnir 7 og fyrir þessa 7 milljarða á að teppaleggja landið með vegum, það á að stoppa í fjárlagagatið og það á að gera alls kyns aðra hluti. Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvernig hún líti á þetta sjónarspil. Er þetta mál lagt fram til þess að breyta einhverju í alvöru eða er það lagt fram, eins ítrekað hefur komið fram í ræðum og andsvörum stjórnarþingmanna, af því að þetta fer svo vel í skoðanakönnunum? Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hún taki undir þessi sjónarmið stjórnarliða, að þetta mál sé sett fram af því að það hafi gengið svo vel í skoðanakönnunum t.d.