156. löggjafarþing — 35. fundur,  6. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:46]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég tek undir með henni að í aðdraganda síðustu kosninga var þetta mál ekki haft í hávegum, fyrir kosningarnar rétt fyrir jólin þegar íslenska þjóðin fékk kartöflu í skóinn. Það var ekki fyrr en eftir kosningar að menn felldu grímuna og settu upp sitt rétta andlit. Það var búið að ræða það þó nokkuð lengi að það ætti að taka lítil og smá skref á tíu árum til að leiðrétta eða laga veiðigjaldsgrunninn en nú, eftir kosningar, á að henda málinu hér í gegnum þingið á örfáum vikum, tveim, þrem vikum. Í fyrsta lagi er búið að gefa dónalega skamman tíma fyrir sveitarfélög og aðra álitsgjafa til að skila umsögnum um þetta mál. Þannig að ég hef velt því fyrir mér og ég spyr hv. þingmann hvort hún geti verið mér sammála um það að í fyrsta lagi sé ríkisstjórnin að ganga gegn sveitarfélögunum í landinu með því að hunsa öll þau varnaðarorð sem fram koma í umsögnum þeirra. Þetta kemur í öðru lagi líka fram í því hvernig ríkisstjórnin ætlar sér nú að hirta sveitarfélögin með því að beita fyrir sig Jöfnunarsjóði sveitarfélaga með því móti að þau sveitarfélög sem ekki gangast undir að fullnýta það sem heitir á máli ríkisstjórnarinnar vannýtta tekjustofna, þ.e. að skattleggja ekki alla í drep — mig langar til að spyrja hvort þessi tvö dæmi, beiting jöfnunarsjóðs og hvernig ríkisstjórnin hunsar þessi ummæli og umsagnir sem komið hafa, sýni að ríkisstjórnin sé í raun og veru í slag við sveitarfélögin.