veiðigjald.
Forseti. Ég get svo sem verið sammála því, að setja það á sveitarfélög landsins að keyra sína skatta í botn til að fá eitthvað út úr jöfnunarsjóði er algerlega gegn öllu sem við trúum á. Kristrún Frostadóttir sagði vissulega að það væru tíu ár sem þau ætluðu að taka sér í þessar breytingar og það ætti ekki að gera neinar kúvendingar á þessu kerfi. Annað hefur heldur betur komið á daginn. Það eru kúvendingar daginn út og daginn inn, ekkert samráð haft við t.d. sveitarfélög, sem er lögboðið. Það er lögboðið að kanna hvaða áhrif þetta mun hafa á þau. Þau höfðu engan umsagnarfrest og umsagnirnar, ég vona að flestir hafi lesið sér til í umsögnum um þetta mál, einkennast nákvæmlega af þessu. Þetta er í rauninni algert skeytingarleysi þessarar ríkisstjórnar gagnvart sveitarfélögum landsins, svo að ekki sé meira sagt.