156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hafa bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 240, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þórhallssyni, og á þskj. 396, um túlkaþjónustu á sviði fræðslumála, frá Snorra Mássyni.

Einnig hafa borist bréf frá umhverfis-, orku-, loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 388, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði, frá Snorra Mássyni.