156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:02]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Á morgun mun ég leggja fram þingsályktunartillögu sem snýst í grunninn um það hvort stjórnvöld ætli að standa við eigin orð eða ekki, hvort verk verði látin fylgja viljayfirlýsingum um eflingu geðheilbrigðisþjónustu eða ekki. Tillagan fjallar um að tryggja áframhaldandi samþætta og einstaklingsmiðaða geðendurhæfingu fyrir ungmenni með fjölþættan vanda. Þetta er ekki flókið, þetta er ekki umdeilt og þetta er stutt af fjölmörgum fagaðilum og samtökum en Janus endurhæfing hefur í rúm 25 ár þjónustað ungt fólk með alvarlegan geðrænan og félagslegan vanda, fólk sem hefur verið að detta á milli kerfa, fólk sem hefur reynt öll önnur þjónustuúrræði og loksins fundið úrræði sem skilar því árangri. Það sem hefur virkað er nú lagt niður og engin sambærileg lausn er tilbúin í staðinn. Við megum ekki gleyma því, virðulegi forseti, að fyrir marga skjólstæðinga Janusar hefur þetta úrræði ekki bara verið valkostur, það hefur verið líflína. Þjónustan hefur skipt sköpum og fyrir marga því verið beinlínis lífsspursmál.

Virðulegi forseti. Við þekkjum öll setningarnar; geðheilbrigðismál í forgang, sérstök áhersla á þjónustu við ungt fólk, fjölbreytt rekstrarform á að fá að njóta sín, en orð duga skammt ef ábyrgð fylgir ekki. Það er ekki hægt að tala fyrir aukinni þjónustu fyrir ungt fólk í einu andartaki og þegja þunnu hljóði þegar úrræði sem hefur skilað árangri í áratugi er lagt niður án útskýringa og án valkosts. Þessi tillaga felur í sér bráðabirgðasamning, samráð við fagfólk og notendur og vinnu að framtíðarskipulagi. Hún skapar brú á milli þess sem hefur virkað og þess sem þarf að byggja til framtíðar. Það verður því forvitnilegt og sannarlega pólitískt áhugavert að sjá hve margir stjórnarþingmenn sýna í dag að þau orð sem skrifuð voru í stjórnarsáttmála séu ekki orðin tóm. Enn er tími til að sýna ábyrgð og ganga til liðs við málið því að þetta snýst ekki um mig og þetta snýst ekki um Janus endurhæfingu, þetta snýst um unga fólkið okkar og hvort það eigi rétt á að fá þjónustu sem virkar eða ekki.