156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Það virðist vera að raungerast að við séum komin hér með verkstjórn. Vandamálið er hins vegar að þetta er ekki verkstjórn sem gengur hratt og vel til verka. Nei, þetta er verkstjórn sem gengur hratt og illa til verka, sem er afleit staða. Fyrst koma frumvörp fyrri ríkisstjórna óbreytt á færibandinu. Því næst kemur ekkert nema illa undirbúin frumvörp sem öll virðast eiga það sameiginlegt að snúast um skattahækkanir, frá ríkisstjórn sem tilkynnti sjálf að hún ætlaði ekki að hækka skatta. Þess á milli koma fram frumvörp án allrar greiningar á áhrifum, jafnvel áhrifum sem sérfræðingar hafa bent á að muni verða til hins verra fyrir þjóðina alla. Ráðherrar virðast hafa það markmið umfram allt annað að ganga hratt til verka fremur en að huga að innihaldinu svo að hvert klúðrið rekur annað. Þeir ættu stundum að hafa í huga máltækið að betur er heima setið en af stað farið, því nú virðist ítrekað ætt af stað og hringsnúist fremur en að vandað sé til verka.

Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra virðist til að mynda tvisvar í sama mánuði brjóta lög við það eitt að skipa eða skipa ekki í stjórn. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra mætti í útvarpsviðtal í morgun til að ræða þá afleitu stöðu sem snýr að umræðunni um menntaleysi í Breiðholtsskóla. En nei, hann segist ekki geta svarað fyrir einstaka skóla. Það var ekki verið að óska eftir að hann talaði um ákveðna einstaklinga. Spurt var: Til hvaða viðbragða ætlar ráðherra að grípa? Þá voru engin svör. Það kom fram að ríkisstjórnin væri samt að gera rosalega mikið en bara ekki taka á vandanum sem er uppi núna. Hæstv. forsætisráðherra ætlaði að taka fram sleggjuna og hamra niður vextina. En nei, verðbólgan fer upp. Ef allt á að leysa með skattahækkunum og minnkaðri verðmætasköpun er ekki mikil von á breytingu.

Frú forseti. Ég hvet ríkisstjórnina til að snúa af þessari vegferð, vanda til verka og stuðla að verðmætasköpun en ekki skattahækkunum.