Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það vekur nokkra athygli að hæstv. félagsmálaráðherra virðist líta á lög og reglur sem eins konar hlaðborð eða vinsamleg tilmæli. Það kemur m.a. fram í því að hún hefur nú brotið jafnréttislög með skipan í stjórn ríkisfyrirtækis. Hún er reyndar búin að taka þessa skipun til baka, væntanlega eftir hvatningu stöllu sinnar, dómsmálaráðherra sem fer með jafnréttismál. Það breytir ekki því að þarna fer hún í sama knérunn og fleiri ráðherrar hafa gert fyrr. Ég man í fljótu bragði eftir einum fjármálaráðherra, ef ég man rétt, og einum forsætisráðherra. En þetta er ekki til eftirbreytni, frú forseti. Þetta er ekki til eftirbreytni vegna þess að við eigum að treysta á að ráðherrar fari að landslögum. Sagan er ekki öll, frú forseti, vegna þess að hæstv. félagsmálaráðherra hefur heldur ekki skipað í stjórn Tryggingastofnunar ríkisins undir því yfirskini að það standi til að breyta lögum um stofnunina, þannig að stjórn sé ekki nauðsynleg. Nú þori ég að veðja, ef ég gerði það, að ef sá sem hér stendur eða einhver annar myndi leggja fram skattframtal sem byggðist á því að fara eftir skattbreytingu sér í hag, sem hefði ekki enn tekið gildi en væri í undirbúningi, þá er ég klár á því að viðkomandi myndi fá, ekki bara tilmæli, eins og þáverandi aðalhagfræðingur Kviku banka, núverandi forsætisráðherra, fékk, heldur hótun um sekt og jafnvel varðhald. Þannig að ég segi aftur: Það er lágmark (Forseti hringir.) að ráðherrar í ríkisstjórn fari að landslögum og ég minni á herferðir þessa hæstv. félagsmálaráðherra þegar aðrir ráðherrar hafa stigið (Forseti hringir.) á sleipa grund áður fyrr.