Störf þingsins.
Frú forseti. Eitt einkenni borgaralegra flokka er að gæta hófsemi í skattlagningu á almenning og styðja við atvinnulífið. Nú er það orðið augljóst að Viðreisn hefur skráð sig út af lista yfir borgaralega flokka þótt þau hafi gefið annað í skyn fyrir kosningar. Komið hefur í ljós að Viðreisn er einfaldlega ótíndur vinstri flokkur. Fyrstu mánuðir ríkisstjórnarinnar hafa einmitt einkennst af stjórnlausum áformum um skattahækkanir. Það er ekki mikil umhyggja fyrir atvinnulífinu þegar ekki er einu sinni haft fyrir því að leggja fram álitsgerð um áhrif af skattahækkun á atvinnulíf og byggðarlög hringinn í kringum landið. Þetta kallast að skjóta fyrst og spyrja svo. Veiðigjöldin leggjast þyngst á landsbyggðina og Viðreisn býður þjóðinni upp á einhvern orðhengilshátt, segir þetta ekki vera skattahækkun. Auðvitað veit fólk hvað eru skattahækkanir.
Nýjasta útspil hæstv. utanríkisráðherra þess flokks er að taka þátt í yfirlýsingu með sex öðrum utanríkisráðherrum þar sem alið er á andúð í garð Ísraels og hirða ekkert um að ráðfæra sig við utanríkismálanefnd áður. Af hverju telur hæstv. utanríkisráðherra ástæðu til þess að Ísland tali með hvassari hætti í garð Ísraels en gengur og gerist meðal annarra þjóða? Gerir hæstv. utanríkisráðherra sér ekki grein fyrir því að hún er utanríkisráðherra lítillar smáþjóðar norður í Atlantshafi sem vinnur við það að selja fisk? Okkar hlutskipti í veröldinni er að tala fyrir friði og selja fisk.