Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að koma á fót sérstöku innviðafélagi sem heldur utan um stórar samgönguframkvæmdir þar sem lífeyrissjóðirnir eru virkjaðir til þátttöku. Með því að bjóða lífeyrissjóðunum að borðinu er hægt að hraða uppbyggingu, landi og þjóð til heilla. Þessi leið er þekkt í Evrópuríkjum. Þar hafa ríki komið á fót sérstökum félögum sem sjá alfarið um fjármögnun og framkvæmd stórra samgönguframkvæmda. En við eigum að horfa til fleiri fjárfestinga en samgönguframkvæmda. Það er mikilvægt og í senn áhugavert að lífeyrissjóðirnir komi að fleiri og fjölbreyttari verkefnum og mætti þar nefna uppbyggingu húsnæðis sem og aðrar samfélagslegar framkvæmdir, til að mynda fjárfestingar á vegum sveitarfélaga. Þessi leið skilar sér í því að allir vinna. Lífeyrissjóðir landsins fá ný fjárfestingartækifæri til langs tíma með öruggri ávöxtun sem eykur á fjölbreytileika eignasafns þeirra og með fyrirsjáanleika í arðsemi. Ríkið fær traustan samstarfsfélaga til að ráðast í þau verkefni sem setið hafa á hakanum árum saman. Samfélagið allt fær öfluga innviði.
Virðulegi forseti. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn birti í gær álit sitt á stöðu Íslands. Hann telur að aukin innviðafjárfesting, án þess að raska sjálfbærni ríkisfjármála, styrki vaxtahorfur. Áform stjórnvalda um aukna fjárfestingu eru jákvæð í ljósi mikillar innviðaskuldar þó að fjármálaáætlun geri ráð fyrir samdrætti í lok tímabilsins. Sjóðurinn leggur til að viðhalda núverandi fjárfestingarhlutfalli og bendir á mögulega aðkomu lífeyrissjóða og alþjóðlegra sjóða að fjármögnun.
Fjármálaráð, í sínu áliti um fjármálaáætlun, fagnar því að leitað sé nýrra leiða í fjármögnun samgönguframkvæmda og vonar að slíkt leiði til þess að hraðar gangi að vinna upp þá innviðaskuld sem myndast hefur á undanförnum árum. Fjármálaráð hvetur til þess að vandað verði til verka og veltir því upp hvort það megi ekki leita nýrra leiða til að fjármagna fleiri verkefni en bara á sviði samgönguinnviða.
Ríkisstjórnin er á réttri leið og ég vil hvetja hana til dáða að koma á fót sem fyrst innviðafélagi svo við getum hafið nýtt tímabil innviðafjárfestinga með bjartari tímum, landi og þjóð til heilla.