Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ákveðin vitundarvakning hefur átt sér stað í íslensku samfélagi hvað varðar geðheilbrigðismál á liðnum árum. Þessi mál eru nú minna tabú en áður og mikilvægi þeirra orðið flestum ljóst ef ekki öllum. Það er gríðarlega mikilvægt að fólk hafi aðgang að geðheilbrigðisþjónustu og geti leitað til sálfræðinga og annarra sérfræðinga þegar á reynir. Verkefni eins og Bergið headspace, Píeta samtökin og Geðhjálp eru af hinu góða og ætti að mínu viti að forgangsraða fjármunum í slík verkefni.
Frú forseti. Árið 2020 samþykkti Alþingi frumvarp um niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Unnið hefur verið í þessa átt á síðustu árum. Viðreisn gerði þetta að kosningamáli og fullyrti að kæmust þau í ríkisstjórn yrði niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu eitt af þeirra fyrstu verkum. Þá átti heldur betur að klára dæmið, eins og formaður Viðreisnar orðaði það. Mörgum stjórnmálamanninum hefur verið tíðrætt um geðheilbrigðisþjónustu síðustu ár. Það er auðvitað mjög jákvætt, frú forseti. Þar hafa Viðreisnarliðar gjarnan verið fremstir í flokki og talað manna hæst, a.m.k. meðan þeir stóðu enn utan ríkisstjórnar. Nú þegar þeir hafa völdin til að gera breytingar virðist ekki hafa verið mikil innstæða á bak við orð þeirra. Ætli þau eigi sér ekki viðreisnar von, frú forseti? Nú eru meira en fjórir mánuðir liðnir af kjörtímabilinu og enn hefur ekkert heyrst frá ríkisstjórninni í þessum efnum. Ætla ráðherrar Viðreisnar ekkert að klára dæmið?