Störf þingsins.
Frú forseti. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur hvorki áhuga né metnað til að íslensk börn fái lögbundna menntun. Á þriggja ára fresti hefur það komið mörgu skólafólki í opna skjöldu að námsárangur í grunngreinum grunnskólans er í molum og versnar stöðugt, jafnt og þétt. En það sem er kannski mesta áhyggjuefnið er að yfirvöld menntamála hafa ekki hugmynd um hvers vegna þetta gerist, þau hafa ekki hugmynd um það. Um leið hafa þau engar lausnir til að koma íslenskum grunnskólanemendum til hjálpar. Þetta er grafalvarlegt.
Nýlegt dæmi um skóla hér í borg er ekki einsdæmi þar sem nemendur og foreldrar virðast ekki geta treyst upplýsingum um námsárangur, enda er einkunnabólga viðvarandi vandi í grunnskólunum. Eru það ekki svik við börn að menntamálayfirvöld hafa í áratugi reynt að greina vandann en ekki fundið út hver vandinn er? Yfirvöld hafa ekki hugmynd um það hvers vegna við erum á þessari braut. Við erum með fimm ára kennaranám, nýjustu tækni í langflestum grunnskólum. Við erum ríkt samfélag, ágætismenntunarstig þjóðarinnar og svikin raungerast í að 40% grunnskólanemenda útskrifast eftir tíu ára skyldunám ekki með grunnfærni í lesskilningi. Þetta er brot á grunnskólalögum. Við höfum allar forsendur til þess að vera á heimsmælikvarða í grunnskólastarfi. Og hvers vegna erum við ekki þar? Vegna þess að yfirvöld vita ekki hvers vegna árangurinn er svona slakur. Þau vita það ekki. Hefur einhver úr valdablokk menntamála komið fram og sagt: Ég skal axla ábyrgð, þetta gerðist á minni vakt? Svarið við því er nei. Enginn.