Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég var með svona óljósar hugmyndir um hvað ég vildi ræða í þessum starfatíma. Eftir að hafa hlustað á hv. þm. Jónínu Brynjólfsdóttur tala þá sé ég mig knúinn til að koma hingað upp og taka undir afar góða ræðu hv. þingmanns sem er jú forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi og þar af leiðandi þekkir betur en margir hér inni mikilvægi Fjarðarheiðarganga fyrir þetta fjölkjarna sveitarfélag sem í dag lendir oftar en ekki í því að einn af þessum kjörnum, Seyðisfjörður, lokast algerlega frá hinum kjörnunum í sveitarfélaginu. Í sumar eru liðin 50 ár frá því að ferjusiglingar hófust fyrst frá Seyðisfirði til Færeyja og þaðan til Danmerkur, mjög mikil samgöngubót. Þetta er líka önnur gáttin inn í landið. Hægt er að koma með flugi, þ.e. loftleiðina, eða sjóleiðina, það eru ekki margir aðrir möguleikar í stöðunni. En þrátt fyrir það hefur það ekki enn þá verið gert að tengja Seyðisfjörð almennilega við Egilsstaði. Ég vil þó hrósa til að mynda þeim þingmönnum sem sátu í umhverfis- og samgöngunefnd á sínum tíma þegar Fjarðarheiðargöng voru sett efst á dagskrá með það fyrir augum að það yrði fyrsti hlutinn af hringtengdu Austurlandi, sem er mjög spennandi framtíðarsýn þannig að það geti svo sannarlega orðið fjölkjarna samfélag og haldið áfram að blómstra á eigin forsendum. Þetta er það sem ég vildi sagt hafa í bili. Ég fæ vonandi tækifæri til að ræða þetta við hv. þingmann frekar sem og við hér inni.