ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf., nr. 80/2024. Frumvarpið felur í sér að markaðsettu útboði verði skipt í þrjár tilboðsbækur í stað tveggja með tilkomu nýrrar tilboðsbókar C. Markmið tilboðsbókar C er að auka líkur á aðkomu stórra erlendra fagfjárfesta. Þá er lögð til breyting til að skýra orðalag varðandi lágmarkstíma útboðsins.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru venju samkvæmt aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Fjallað var um athugasemd Kauphallarinnar varðandi hugtakanotkun. Þar var lagt til að í stað þess að vísa til „útboðslýsingar“ í a-lið 1. mgr. frumvarpsins, sbr. 4. gr. laganna, yrði vísað til „lýsingar“, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129. Meiri hlutinn vísar til nefndarálits meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar við meðferð frumvarps þess sem varð að lögum nr. 80/2024 og minnisblað fjármála- og efnahagsráðuneytis þar sem fjallað var um þessa hugtakanotkun. Meiri hlutinn tekur undir afstöðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að hugtakið útboðslýsing muni ekki valda vandræðum.
Í umsögn Kauphallarinnar var jafnframt bent á að breytingar á hinni svokölluðu skráningarlöggjöf Evrópusambandsins gætu falið í sér undanþágur frá kröfunni um birtingu útboðslýsingar. Kauphöllin lagði til að heimilt yrði að birta annað viðeigandi skjal sem væri einfaldara í sniðum og þarfnaðist ekki staðfestingar Fjármálaeftirlits Seðlabankans. Með því væri unnt að beita undanþágunni þegar hún tæki gildi á Íslandi. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis kom fram að umræddar breytingar eigi að taka gildi innan Evrópusambandsins árið 2026 og upptaka gerðanna í EES-samninginn sé enn til skoðunar. Þá var bent á að til standi að selja allan eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka á næstu misserum. Sölu á eignarhlutanum kann því að vera lokið áður en undanþágan tekur gildi. Að því gættu telur meiri hlutinn ekki tímabært að ráðast í umrædda breytingu, en beinir því til ráðuneytisins að skoða framangreint ef lögin um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. hafa ekki lokið hlutverki sínu og fyrirhuguð breyting hefur tekið gildi.
Þá er í álitinu reifuð frekari skýring með hvaða hætti tilboðsbók C væri ætlað að styðja við verðmyndun og koma í veg fyrir að hún yrði afturhlaðin og óskilvirk, eins og segir í greinargerð með frumvarpinu. Meiri hlutinn vísar til minnisblaðs fjármála- og efnahagsráðuneytis þar sem fram kemur að tilgangur tilboðsbókar C sé fyrst og fremst að auka líkur á þátttöku stórra fjárfesta og sérstaklega erlendra fagfjárfesta. Tilboðsbók C gerir stórum fagfjárfestum kleift að taka þátt á öðrum forsendum en í tilboðsbók B, þar sem fyrirkomulagið er svokallað hollenskt útboð. Þessir stærri fagfjárfestar í tilboðsbók C fá úthlutað stækkunarheimild ef eftirspurn er mikil, en verðið sem þeir greiða miðast við verð sem myndast í tilboðsbók B. Þar með hefur tilboðsbók C ekki áhrif á verðmyndun í tilboðsbók A, sem ræðst af fyrirframföstu verði, eða bein áhrif á verðmyndun í tilboðsbók B. Tilboðsbók C kann þó að hafa þau áhrif að auka heildareftirspurn í útboði.
Að lokum fjallaði nefndin um framkvæmd markaðsþreifingar, sbr. d-lið 1. gr. frumvarpsins, og hvort hlutlægu skilyrðin eigi ekki við ef framkvæmd sé markaðsþreifing. Hlutlægu skilyrðin fyrir tilboðsbók C eru að einungis eftirlitsskyldir fagfjárfestar sem gera tilboð fyrir eigin reikning og uppfylla það skilyrði að samanlögð fjárhæð eigna þeirra sé jafnvirði 70 milljarða kr. eða hærri sé heimilt að gera tilboð. Eins og segir í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis sé tilgangurinn að tryggja að einungis tilætlaður hópur geti tekið þátt í tilboðsbók C og gilda því skilyrðin ávallt og óháð því hvort markaðsþreifingar fara fram eða ekki. Markaðsþreifing getur hins vegar gefið nákvæmari skilning á eftirspurn og gæðum mögulegra fjárfesta fyrir útboð. Jafnframt kann hún að hafa áhrif á hvernig úthlutun, sem byggist á fyrirframákveðnum og birtum viðmiðum, innan tilboðsbókar C fari fram. Um þetta er síðan fjallað frekar í álitinu sem liggur hér frammi.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt. Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita auk þess sem hér stendur hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Dagbjört Hákonardóttir, Marta Wieczorek og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Forseti. Ég vil bara greina frá því að vinnan í nefndinni gekk mjög vel fyrir sig og það bárust færri umsagnir heldur en ég átti von á. Það bárust bara tvær umsagnir, frá Seðlabankanum og svo frá Kauphöllinni. Vinnan gekk mjög vel fyrir sig. Það mætti kannski halda að ég hefði verið að mæla fyrir breyttu námsmati en það var svo sannarlega ekki, þetta voru tilboðsbækurnar þrjár, A, B og C, ef einhver skyldi hafa ruglast undir þessari ræðu minni.