ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Nú sat ég ekki á þinginu núna síðast og tek bara við málinu eins og það kom fyrir nefndina. En það má þó nefna að við vinnslu þessa frumvarps, og það var fjallað um það í nefndinni, fór fram umfangsmikil skoðun Ríkisendurskoðunar á fyrri bankasölu og við vorum mörg sem spurðum út í það og við vildum auðvitað hafa traust til þess að ferlið væri betra heldur en áður var, enda kemur fram í frumvarpinu að það var búið að sníða ýmsa vankanta af því áður en það kom til nefndarinnar. Fjármála- og efnahagsráðherra tók tillit til niðurstöðu Ríkisendurskoðunar við samningu þessa frumvarps þannig að í því trausti treysti ég mér fyllilega til að standa við þetta nefndarálit burt séð frá því hvað aðrir gerðu fyrir einhverjum árum. Ég tek við málinu eins og það er og hef fulla trú á því að þetta frumvarp uppfylli þau markmið að þetta sé gegnsætt, hagkvæmt og hlutlægt og jafnræði sé við ráðstöfun þessa eignarhluta. Í því trausti ætla ég að samþykkja þetta frumvarp.