156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[15:53]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er áhugavert að heyra hver það er sem setur á sölu, en þeim sem var rúinn trausti síðast var samt treyst til að undirbúa þessa sölu. Þannig að það er eini munurinn. Þá er bara gott að heyra það að það sé fullt traust til undirbúnings fyrri ríkisstjórnar á þessari sölu.

Þá langar mig bara að spyrja hér í síðara andsvari hvort hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar sé sannfærður um það að það sé full eining innan stjórnarsamstarfsins um að selja Íslandsbanka og standa að þessari sölu. Og ég upplýsi það að ég styð söluna og mun styðja þetta frumvarp þó að ég hafi ekki ritað undir nefndarálitið út af þessum breytingum um C-bókina og þetta huglæga mat sem var skilið eftir. En að öðru leyti mun ég styðja þetta. Þannig að: Er full eining innan hæstv. ríkisstjórnar um þessa sölu?