156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[15:54]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina á nefndaráliti og ítreka það sem kom fram í 1. umræðu að ég styð sölu á Íslandsbanka og hef alltaf gert. Ég fagna því að það sé eining innan ríkisstjórnarinnar um söluna, því að það er alls ekki það sem birtist okkur hér sem sátu á þingi á síðasta kjörtímabili. En ég segi það sem áður hefur verið sagt hér: Batnandi fólki er best að lifa og gott að það sé eining um sölu á þessari mikilvægu eign.

En mig langaði, virðulegur forseti, að spyrja aðeins um næstu skref. Nú sit ég ekki í nefndinni þannig að ég hef ekki tækifæri til að spyrja þeirra spurninga og ég átta mig á því að hér er um að ræða mál sem skiptir máli út frá tímafrestum og öðru. Ég geri ráð fyrir því að þessi sala muni fara fram fljótlega. Ég er aðeins að velta fyrir mér hlutverki þingsins í kjölfarið. Ég sé að í lögunum, það er að segja lögunum sem sett voru á síðasta kjörtímabili, þá er grein sem lýtur að upplýsingagjöfinni og undirbúningnum eftir útboðið. Þá þurfi þessar upplýsingar að liggja fyrir því að það er nú eitt af því sem var ágreiningsefnið á sínum tíma. Bankasýslan taldi sig ekki þurfa að upplýsa en ráðherra lagði skýrt til að svo þyrfti að vera. Þannig að ég bara í rauninni spyr annars vegar um næstu skref svo við áttum okkur betur á því og hvort það hafi verið rætt í nefndinni hvort þessu verður svo eitthvað fylgt eftir í kjölfarið, farið yfir það með hvaða hætti útboðið tókst.