156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[15:56]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Hann spyr um eftirfylgnina. Við erum ekki búin að klára afgreiðslu þessa máls og er það náttúrlega næsta skref. Það er að klára þessa umræðu hér og svo fer þetta vonandi í atkvæðagreiðslu. Við ræddum ekki sérstaklega í nefndinni um næstu skref en eins og hv. þingmanni er fullkunnugt um hefur Bankasýslan ekki lengur með málið að gera og það var auðvitað þannig, eftir því sem ég les úr þessu áliti ríkisendurskoðanda, að þar var mikið um framkvæmd Bankasýslunnar að ræða, það voru kannski ekki stórir vankantar þingsins, ef ég skil álitið rétt. Nú sat hún á þingi síðast. Hún getur kannski upplýst það hér í seinna andsvari sínu. En þar var um að ræða fyrst og fremst framkvæmd Bankasýslunnar á sölunni, það sem kom á eftir þeirri þinglegu meðferð. En ég held að við þingmenn þurfum að fylgjast vel með þessu og að salan sé framkvæmd í samræmi við þau lög sem stendur til að samþykkja. Í ljósi sögunnar og hvernig okkur hefur gengið með sölu á Íslandsbanka finnst mér skipta miklu máli að það sé traust um hana, að fólk hafi trú á þessu ferli sem við erum að búa til um hlutina þannig að ég held að það sé full ástæða til þess að fylgja því vel eftir.