ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og vil einmitt segja það að samkvæmt fyrri lögum, þegar við seldum síðast, var fastmótaður rammi utan um þetta. Ég sat í hv. fjárlaganefnd sem tók málið fyrir eftir beiðni frá hæstv. fjármálaráðherra þá. Ég veit að efnahags- og viðskiptanefnd gerði það líka þannig að það voru tvær nefndir þingsins sem komu að því máli og ég minnist þess ekki að í því ferli hafi verið gerðar sérstakar athugasemdir af þáverandi þingmönnum stjórnarandstöðunnar og til að mynda hæstv. forsætisráðherra sem sat í fjárlaganefnd. Þannig að ég held að við höfum talið okkur vera að gera allt fullkomið og þess vegna held ég að það sé alveg rétt að að mörgu leyti tókst það útboð bara mjög vel og ég held að við þurfum líka að muna það. En það er alveg rétt að í sölunni fór eitthvað úrskeiðis og það rýrði traustið á henni. Í ljósi þess að nú erum við búin að breyta lögunum og við erum hér að vinna samkvæmt nýjum lögum og því að við bætum við tilboðsbók C, sem ég verð að viðurkenna og ég sagði hérna í 1. umræðu að ég hefði ákveðnar efasemdir um, um framkvæmdina og vald ráðherra þar að lútandi, (Forseti hringir.) þá furðar mig að það hafi ekki komið til tals í nefndinni að vera með einhverja sérstaka skýrslugjöf til nefndarinnar og þingsins í kjölfarið eða kalla eftir einhverjum upplýsingum. Þannig að ég hvet hv. þingmann og formann hv. efnahags- og viðskiptanefndar (Forseti hringir.) til að halda því til haga því að ég geri ráð fyrir því og vona, virðulegur forseti, að þetta mál verði samþykkt hér fljótlega og af sölunni verði sem allra fyrst.