ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Ég þakka enn og aftur þingmanninum fyrir andsvarið og ég vil bara þakka þessa hvatningu til að fylgja þessu máli eftir. Ég held að okkur öllum sem hér erum sé bara mjög umhugað um að þetta gangi vel og að landsmenn sem hafa kosið okkur til forystu vilji að þetta gangi vel eftir. Það varð auðvitað, eins og fram hefur komið, algjör skortur á trausti eftir síðustu sölu og það liggur svolítið mikið undir, finnst mér, að þetta gangi vel.
Þannig að ég tek þessi orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur til mín og tek þessu sem góðri hvatningu til áframhaldandi góðra starfa í þágu landsins.