ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Eins og ég nefndi í andsvari áðan þá styð ég þetta mál. Mig langar hins vegar að nota hluta af þeim tíma sem ég hef hér í dag til að fara kannski aðeins yfir aðdragandann að þessari þriðju sölu á Íslandsbanka. Sá sem hér stendur mælti fyrir frumvarpi sem liggur til grundvallar þessari sölu eða þessum breytingum sem er verið að gera hér í dag fyrir rúmu einu ári, 16. apríl 2024, frumvarpi sem var þá á vorþingi og fjallað um af þinginu þá og samþykkt í júní það ár. Mér finnst áhugavert að rifja það upp hér hver var þá afstaða núverandi stjórnarflokka. Þau skiluðu þremur nefndarálitum, hver flokkur skilaði sínu nefndaráliti. Flokkur fólksins fjallaði þar um að það mætti ekki selja gullgæsina og lagðist alfarið gegn frumvarpinu og vildi vísa því til ríkisstjórnar; illa unnið. Bæði Samfylkingin og Viðreisn töldu fyrirkomulaginu verulega ábótavant og margt sem þyrfti að lagfæra til að hlutirnir gætu gengið eðlilega fyrir sig og til þess að hægt væri að samþykkja það. Engu að síður sat Viðreisn hjá við lokin á frumvarpinu en allir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði gegn því, þar á meðal þrír ráðherrar núverandi ríkisstjórnar, voru alfarið á móti því að samþykkja lög sem salan sem nú á að fara fram grundvallast á.
Það er auðvitað hægt að skemmta sér yfir því hvernig þetta allt saman var og ég nefndi hérna áðan í andsvari að það var þar með talinn hæstv. forsætisráðherra sem fór einmitt í andsvar við þann sem hér stendur við framsögu málsins á sínum tíma og taldi að tíminn væri ekki réttur, það væri rétt að bíða. Vissulega kom þar við sögu það klúður sem varð við sölu númer tvö á bankanum og eðlilegar spurningar um hvort þáverandi ríkisstjórn hefði traust, þó svo að það væri nýr fjármálaráðherra sem stæði fyrir þeirri sölu. Það er hins vegar gaman að glugga í söguna og ég ætla að gera það hérna með leyfi forseta, vitna hér í ræðu formanns Flokks fólksins sem hefst svona:
„Herra forseti. Flokkur fólksins er alfarið á móti því að losa sig við eigur sínar, í þessu tilviki gullgæsina sem eftir lifir hjá Íslandsbanka, og líka algerlega á móti því að við seljum Landsbankann sem við viljum sjá gerðan að samfélagsbanka, sem kæmi með alvörusamkeppni inn á þann brjálæðismarkað sem fjármálamarkaðurinn okkar er í dag. Að ætla að stíga varlega til jarðar — eigum við að skoða aðeins hvað Íslandsbanki og Landsbankinn hafa greitt íslenska ríkinu í arð á árunum …“
Í andsvari við þann sem hér stendur talaði sami þingmaður, núverandi hæstv. félagsmálaráðherra, um hvort það ætti að fara að höggva höfuðið af gullgæsinni og fá í einhverri græðgiseinskiptisaðgerð 50 milljarða í stað þess að fá 20 milljarða um óendanlegan tíma. Nú er ég ekki sammála hv. þingmanni og núverandi hæstv. félagsmálaráðherra af því það er jú ekki sjálfgefið að fjármálafyrirtæki skili arði alla tíð og það er ákveðið áhættuatriði að ríkið haldi á svo stórum hlut eins og raun ber vitni. Þess vegna hef ég stutt það að við seljum Íslandsbanka.
Ég vil bara segja að batnandi fólki er best að lifa en það er áhugavert þegar þetta frumvarp sem núverandi nefndarálit og sú umræða sem við erum að eiga hér í dag — þegar það lítur ljós þá er það nákvæmlega samhljóða því frumvarpi sem ég var með í höndunum í lok október og þá var enn verið að velta vöngum yfir hvort hægt væri að selja Íslandsbanka. Mér fannst það ekki hægt á þeim skamma tíma sem þá lá fyrir að væri til kosninga. Það voru forsetakosningar í Bandaríkjunum sem fóru eins og þær fóru og enginn vissi svo sem nákvæmlega hvaða áhrif það myndi hafa á markaði heimsins. Mér fannst það bara ekki vera skynsamlegt að finna einhvern tíma sem menn teldu að væri markaðslega sterkur til þess að selja rétt fyrir kosningar þannig að ég fór ekki fram með það frumvarp en það frumvarp er að birtast hérna hjá núverandi ríkisstjórn, nákvæmlega eins. Þess vegna styð ég það að sjálfsögðu. Það eru tæknilegar útfærslur á því ferli sem var samþykkt í júní 2024. Það er verið að tryggja söluna með betri hætti með því að búa til tilboðsbók C þannig að þegar salan fer fram sé eiginlega fyrirséð að salan muni ganga eftir, verða vel heppnuð með þeim hætti og aðrar smávægilegar útfærslur sem er ágætlega farið yfir bæði í nefndarálitinu og í frumvarpinu sjálfu.
Það sem vekur auðvitað athygli manns í ljósi allra yfirlýsinga stjórnarþingmanna nú, sem þá voru í minni hluta og höfðu svo margt við málið að athuga, er að þeir notuðu ekki tækifærið til að lagfæra það sem þeir voru á þeirri skoðun þá, fyrir innan við einu ári síðan. Maður veltir því auðvitað fyrir sér hvort það hafi þá bara verið í pólitík, innst inni hafi þeir í raun verið sammála því frumvarpi sem þá lá fyrir, að það hafi verið skynsamleg viðbrögð við því sem áður hafði gerst, að það væri skynsamlegt að koma með frumvarp þar sem Alþingi setti sérlög um þessa tilteknu sölu og þær heimildir og þau skilyrði sem þar voru sett, þetta hafi sem sagt allt saman verið í nösunum á þeim. Maður veltir því fyrir sér. Það voru mjög mörg stór orð látin falla og ég vitnaði bara til nokkurra, hefði getað lesið mörg önnur og hvet þingmenn og þá sem heyra þetta mál, ef þeir vilja skemmta sér yfir þeirri lesningu, til að fara inn á þennan dag, 16. apríl 2024, og fara yfir umræðuna sem þá átti sér stað, og reyndar aftur seinna í ferlinu á þinginu í júní. En það er einfaldlega þannig að það eru engar aðrar breytingar en það samhljóða frumvarp sem ég hafði í höndunum í október sem við erum að ræða hér í dag.
Undir lok ræðu minnar vil ég aðeins fara inn á það sem ég nefndi hér í andsvari við hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur. Það var hvort umræða í nefndinni hefði farið fram um heppilegan tíma á sölunni vegna þess að eftir því sem ég best veit hefur þetta nefndarálit legið fyrir samþykkt í tæpan mánuð eða mánuð og hefði þar af leiðandi leikandi verið í höndum stjórnarmeirihlutans og í gegnum þingið að setja á dagskrá miklu fyrr ef það hefði verið talið mikilvægt að selja bankann á þeim tíma. Maður spyr sig: Er ástæðan fyrir þessari breytingu, að koma með málið á dagskrá í dag, sem var ekki fyrirséð í upphafi vikunnar, sú að menn hafa séð fyrir sér að salan geti farið fram núna á næstu vikum? Er búið að tímasetja? Er búið að meta að markaðsaðstæður séu heppilegar? Hv. þingmaður, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, benti reyndar á að verðið á hlutabréfunum í bankanum hafi hríðfallið. Ég man eftir umræðu um slíkt við bæði sölu eitt og sölu tvö að þegar verðin virtust breytast, sérstaklega við sölu tvö, hvort það væri verið að gefa einhverja stórkostlega afslætti og það var reyndar rætt talsvert í tengslum við lögin sem voru samþykkt í júní 2024 hvort það væri gengið of langt í að tryggja gegnsæi og annað, að það myndi hafa áhrif á verðið og þannig væri verið að gefa eignir almennings. Ég hef ekki áhyggjur af því vegna þess að verð sveiflast jú til og frá og ég held að þessi aðferð sem var tryggð og sett inn í lögin hafi verið góð og er þess vegna glaður yfir því að allir hafi skipt um skoðun, jafnvel þeir sem eru alfarið á móti málinu, alfarið á móti því, eða voru það alla vega fyrir einu ári, séu komnir á þá skoðun að vera alfarið með því og þetta sé hið besta mál. Og ég segi enn og aftur: Batnandi fólki er best að lifa. En ég velti fyrir mér hvort þessi tímasetning hafi eitthvað verið rædd og hvort markaðsaðstæðurnar og þessi staðreynd um að verð sveiflast sannarlega á hlutabréfamörkuðum, hvort það sé rétt eða hvort hérna sé einfaldlega verið að klára málið þannig að það sé tilbúið og það sé síðan mat fjármálaráðherra og ráðuneytisins hvenær heppilegasti tíminn sé.
Og um leið og ég segi það þá er það líka jafn augljóst, og ég vil bara segja það hér úr pontu Alþingis, að það er þá augljóslega ákvörðun sem núverandi ríkisstjórn ber 100% ábyrgð á, ekki við hérna í salnum. Við erum fyrst og fremst að búa til umgjörðina um það hvernig hægt er að gera þetta og við teljum að með þessum lagfæringum sem eru að verða á lögunum, þessum tæknilegu útfærslum, sé málið betur til þess fallið að geta farið vel. En það verður síðan algjörlega í höndum ríkisstjórnar, fjármálaráðherra og ráðuneytis hans að taka ákvörðun um hvenær sé rétti tíminn. Vonandi fer það vel. Það skiptir mjög miklu máli fyrir almenning í landinu að fá gott verð fyrir bankann og það skiptir miklu máli fyrir ríkissjóð að fá vel fyrir hann. Ég veit að í lögunum var fyrirhugað að selja þetta í tveimur áföngum. Það er þó heimild til að selja meira í fyrri áfanganum heldur en helming ef tilboð eru með þeim hætti. Það má líka velta því fyrir sér hvort um þetta hafi eitthvað verið rætt í nefndinni, það kemur ekki fram í nefndarálitinu hvort það séu einhver fyrirmæli af hálfu þingsins vegna þess að við erum jú að taka ákvörðun um þessa sölu hérna, þingið, og biðja síðan framkvæmdarvaldið um að framkvæma. En það verður hins vegar á þeirra ábyrgð, framkvæmdarvaldsins, ríkisstjórnarinnar, þegar ákvörðun liggur fyrir hvort tímasetningin sé rétt, hvort hlutirnir gangi upp.
Að lokum vil ég bara ítreka það sem ég sagði í upphafi að eðli máls samkvæmt hef ég ekki skipt um skoðun. Ég er enn á þeirri skoðun að það sé skynsamlegt að fara í þá vegferð að selja Íslandsbanka. Ég held að þær sölur sem eru búnar hafi skilað almenningi vel fyrir sinn hlut og ég held að það væri skynsamlegt að minnka hlut ríkisins. Ég held að sé skynsamlegt að halda áfram á þeirri vegferð og ég held að sú umgjörð sem við smíðuðum í fyrra og við studdum að sjálfsögðu sem erum í stjórnarandstöðu, minni hluta, í dag en stjórnarflokkarnir studdu ekki og tveir af þeim alfarið á móti — þá hef ég þá trú að þetta sé rétt vegferð.