ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Það er tvennt sem ég vil koma að í seinna andsvarinu. Það er annars vegar að vísa í þessa greinargerð fulltrúa Viðreisnar þar sem allt snerist um að fá sem hæst verð. Við munum þá fylgjast með því núna hvernig það mun ganga, hvort það sé enn stefna Viðreisnar eða hvort hún hafi skipt um skoðun hvað það varðar á sama hátt og hinir stjórnarflokkarnir hafa kúvent í sinni afstöðu, kúvent. Í greinargerðinni var mjög mikið fjallað um að það væru alls konar ágallar á fyrirkomulaginu. Fyrirkomulagið var hins vegar viðbrögð við því að sala tvö hafði ekki farið nákvæmlega eins og við vildum þó svo að við fengjum þar hæsta verð og mjög hátt verð og sú aðferð gekk út á það. En frumvarpið varð síðar að lögum og stjórnarflokkarnir treystu sér ekki til að styðja það, ekki heldur Viðreisn þó að hún styðji almennt sölu á ríkisfyrirtækjum, en treysta sér í dag til að byggja söluna alfarið á nákvæmlega þeim sömu lögum.