ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir sína ræðu og innlegg í þessa umræðu. Það er mikilvægt að fá þau sjónarmið fram, enda þekkir hann málið vel og hefur komið að því. Hér hefur mikið verið talað um traust, sem ég tek undir að skiptir miklu máli, og hvernig til hafi tekist við síðustu sölur á bankanum, bæði sölu eitt og tvö, og kannski hefur mest verið rætt um sölu tvö. Eftir að söluferlið hafði gengið yfir kom vissulega upp tortryggni sem hefði getað haft áhrif á traust og hlutir sem máttu augljóslega fara betur. En það voru kannski atriði sem ekki var hægt að sjá fyrir við undirbúning sölunnar; hverjir myndu bjóða í og að einhverjir af þeim sem störfuðu að sölunni færu ekki eftir öllum reglum sem voru settar. Það er einhvern veginn erfitt fyrir þá sem bera ábyrgð á sölunni að bera ábyrgð á því öllu en gera það samt sem áður. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Ef við horfum á framkvæmd sölunnar og markmiðið um að fá sem hæst verð fyrir ríkissjóð og skattgreiðendur þessa lands, hvort við getum ekki, þrátt fyrir þá umræðu og það umrót sem varð eftir söluna, sammælst um að salan sem slík hafi eiginlega gengið eins vel og mögulegt var og líka hvað varðar það verð sem ríkissjóður fékk fyrir, hvort hv. þingmaður taki ekki undir það.