ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.
Virðulegur forseti. Ég get algerlega tekið undir það og fyrirkomulag sölunnar snerist einmitt um að fá sem hæst verð. Fyrsta salan var opin svona almennt, ekkert ósvipað og við erum að horfa á núna, enda lá þá ekki fyrir mat markaðarins á verðinu þar sem bankinn var hundrað prósent í eigu ríkisins og þess vegna ekki óeðlilegt að leita annarra leiða. En það kom líka fram í þessari sölu að þrátt fyrir ýmislegt sem búið var að lagfæra, og alls konar regluverk sem hefur verið sett í kringum fjármálakerfið, þá má hvergi slaka til. Við sáum einfaldlega að fjármálakerfið hagar sér með þeim hætti og bæði sekt Fjármálaeftirlitsins og skýrsla Ríkisendurskoðunar sýna fram á það að því miður má hvergi slaka á í regluverkinu. En mér finnst umræðan um traust áhugaverð. Ég spyr hvort það sé mikið traust eða trúverðugleiki í sölu núverandi ríkisstjórnar þegar einn flokkur í ríkisstjórn hefur talað með þeim hætti sem hann hefur gert, þar sem hann leggst alfarið gegn því að selja nokkra ríkiseign og að þetta sé gullgæs sem ekki megi hrófla við. Maður veltir fyrir sér: Er það þá þannig í alvörunni að það sé einhver trúverðugleiki á bak við það að slíkur flokkur sé aðili að þeirri sölu? Og hæstv. forsætisráðherra greiddi atkvæði gegn frumvarpinu á sínum tíma, þeim sömu lögum og sú sala sem væntanleg er grundvallast á — það eru litlar lagfæringar, tæknilegar útfærslur sem hér er verið að laga. Í þessu ljósi má spyrja: Er mikið traust og trúverðugleiki fólginn í því að hópur sem er svona samsettur standi á bak við söluna?