156. löggjafarþing — 36. fundur,  7. maí 2025.

ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf.

173. mál
[16:26]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú get ég auðvitað ekki svarað því, það verða stjórnarflokkarnir að gera. Ég vona sannarlega að markaðurinn meti það ekki sem veikleika en maður getur alveg óttast það, líka þegar yfirlýsingarnar hafa verið með jafn stórkarlalegum hætti og þær hafa verið allt fram undir þetta. Jafnvel eftir að menn settust í ríkisstjórn hafa verið uppi efasemdir um skynsemi þess að selja banka og þá veltir maður auðvitað vöngum yfir því hvort núverandi ríkisstjórn hafi nægan trúverðugleika og þar með traust til þess að standa að jafn mikilvægri sölu og þessari. Ég vona sannarlega að það hafi ekki áhrif á markaðinn en ég veit það ekki.